Fréttir

1.4.2014

Opið fyrir umsóknir í hönnunarsjóð



Nú er opið fyrir umsóknir um Þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki og Markaðs- og kynningarstyrki hönnuarsjóðs. Umsóknarfrestur er til 15. apríl en einingis verður údeilt einu sinn á árinu í þessum styrkjarflokkum. Einnig er opið fyrir umsóknir um ferðastyrki, en ferðastyrkjum er úthlutað fjórum sinnum yfir árið.

Þróunar- og rannsóknarstyrkir

Er ætlað að styrkja rannsóknir og þróun nýrra hugmynda eða lausna. Þróunar- og rannsóknarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur þróunar- og rannsóknarstyrk á möguleika á að fá verkefnastyrk síðar.

Verkefnastyrkir

Er ætlað að styrkja nýjar hugmyndir eða lausnir sem búið er að þróa og móta og eru komin á útfærslu- og framkvæmdastig. Verkefnastyrkir geta að hámarki numið 5 milljónum króna. Verkefni sem hlotið hefur verkefnastyrk á möguleika á að fá markaðs- og kynningarstyrk síðar.


Markaðs- og kynningarstyrkir

Er ætlað að styrkja verkefni sem komin eru af útfærslu- og framkvæmdastigi og eru fullmótuð og tilbúin til markaðssetningar. Markaðs- og kynningarstyrkir geta að hámarki numið 2 milljónum króna.

Ferðastyrkir

Er ætlað að auka möguleika hönnuða og arkitekta á því að taka þátt í erlendum samstarfs- og kynningarverkefnum, sýningum, viðburðum, ráðstefnum eða viðskiptastefnumótum. Hægt er að sækja um ferðastyrk fyrir einn einstakling eða fleiri til sömu ferðar.
Veittir verða allt að 30 ferðastyrkir að upphæð 100 þúsund hver.

Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins, sjodur.honnunarmidstod.is


Umsóknarfrestir á árinu

Umsóknarfrestur fyrir þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki og markaðs- og kynningarstyrki á árinu 2014 eru:
15. apríl. Opnað fyrir umsóknir 15. febrúar.
Áætluð úthlutun um miðjan maí mánuð.

Frestir fyrir umsóknir um ferðastyrki verði sjálfstæðir og oftar á árinu 2014:
17. febrúar. Opnað fyrir umsóknir 6. janúar.
15. apríl. Opnað fyrir umsóknir 15. febrúar.
1. september. Opnað fyrir umsóknir 15. júlí.
1. nóvember. Opnað fyrir umsóknir 15. september.


Um hönnunarsjóð

Hönnunarsjóður heyrir undir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og er tekjustofn hans árlegt framlag sem Alþingi ákveður á fjárlögum. Í ár er framlag til sjóðsins 25 milljónir króna og fer Hönnunarmiðstöð Íslands ehf. með umsýslu sjóðsins.

Megin hlutverk hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, ásamt atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi. Sjóðurinn styrkir jafnframt kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar.

Stjórn hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra. Fimm manna stjórn er skipuð til þriggja ára í senn. Núverandi stjórn Hönnunarsjóðs skipa: Halldóra Vífilsdóttir formaður, skipaður án tilnefningar, Íva Rut Viðarsdóttir varaformaður, Ástþór Helgason og Haukur Már Hauksson, öll tilnefnd af Hönnunarmiðstöð Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneyti á eftir að tilnefna einn í stórn fyrir árið 2014.
















Yfirlit



eldri fréttir