Fréttir

21.2.2014

HönnunarMars 2013 tilnefndur til Lúðursins í þremur flokkum

Ármann Agnarsson og Jónas Valtýsson eru hönnuðir af einkenni HönnunarMars 2013. HönnunarMars 2013 fékk tilnefningu í þremur flokkum; ásýnd fyrirtækis eða vörumerkis, prentauglýsingar og í flokknum veggspjöld og skilti. Lúðurinn verður afhentur í 28. sinn við hátíðlega athöfn í Hörpu 21. febrúar.

DesignMarch 2013 Identity from Iceland Design Centre on Vimeo.

Um Einkenni HönnunarMars 2013

Hönnuðirnir Jónas Valtýsson og Ármann Agnarsson báru sigur úr býtum í samkeppni um einkenni HönnunarMars 2013. Hugmynd þeirra er smíðuð grind úr tré þar sem stafir mynda nafn hátiðarinnar í eins konar skúlptúr.

Trégrindin, sem er engin smá smíði eða 475 x 350 x 45 cm að stærð, var smíðuð af hönnuðinum Hlyni Axelssyni. Grindin var síðan ljósmynduð af Marino Thorlacius á völdum stöðum í borginni.

Jónas og Ármann segja hönnunina vísa í hlutverk hátíðarinnar sem ómálaðan striga sem hönnuðir setja mark sitt á. Eftir að grindin hafði verið ljósmynduð var hún tekin í sundur og völdu hönnuðirnir fjögur hönnunarteymi stafi til að til að spreyta sig á.

Hönnuðirnir fjórir eru úr mismunandi greinum:

Mundi er fatahönnuður og myndlistarmaður, sem hannar undir eigin merki í Reykjavík.

DesignMarch 2013 | M by Mundi from Iceland Design Centre on Vimeo.


Vík Prjónsdóttir er teymi hönnuða sem hannar og framleiðir ullarvörur innblásnar af þjóðsögum og náttúru Íslands.

DesignMarch 2013 | N by Vík Prjónsdottir from Iceland Design Centre on Vimeo.


HAF by Hafsteinn Juliusson er hönnunarstúdíó sem vinnur að fjölbreyttum verkefnum, allt frá vöruhönnun að innanhúshönnun og upplifunarhönnun.

DesignMarch 2013 | H by HAF from Iceland Design Centre on Vimeo.


Marcos Zotes er spænskur arkitekt búsettur á Íslandi. Hann er þekktur fyrir innsetningar sem hann vinnur í borgarumhverfi svo sem opnunaratriði Vetrarhátíðar í Reykjavík.

DesignMarch 2013 | S by Marcos Zotes from Iceland Design Centre on Vimeo.

















Yfirlit



eldri fréttir