Fréttir

7.2.2014

Kallað eftir tilnefningum til menningarverðlauna DV



Dómnefnd um menningarverðlaun DV í flokki arkitektúrs óskar eftir tilnefningum á verkum sem lokið var á árinu 2013. Leitað er eftir verkefnum á breiðu sviði manngerðs umhverfis.

Tilnefningar ásamt stuttri lýsingu á verkefni, ljósmyndum og teikningum eftir því sem við á, skulu berast eigi síðar en 14. febrúar 2014 á netfangið helgi@tvihorf.is sem pdf-skjal.

Þau verk sem tilnefningu hljóta, verða ljósmynduð sérstaklega.

Myndin sem fylgir fréttinni er tekin af og í Kaffihúsi í Lystigarði Akureyrar eftir arkitektastofuna Kollgátu sem hlutu, fyrir verkið, Menningarverðlaun DV fyrir árið 2012 í flokki arkitektúrs. Í flokknum voru jafnframt tilfnefnd Leikskólinn Akrar hannaður af Einrúm og Arkiteó og Stöðin hönnuð af Krads. Nánari upplýsingar um Menningarverðlauna DV fyrir árið 2012 í flokki arkitektúrs má finna hér.
















Yfirlit



eldri fréttir