Fréttir

28.1.2014

Lani Yamamoto hlýtur myndskreytiverðlaunin 2013



Lani Yamamoto hlýtur íslensku myndskreytiverðlaunin 2013 fyrir bókina Stínu Stórusæng, sem Crymogea gefur út.

Dimmalimm verðlaunin í ár eru styrkt af Myndstefi og Félagi bókagerðarmanna. Dómnefndina skipuðu Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, Gunnar Karlsson og Halldór Þorsteinsson.

Kristín Dagmar talaði fyrir hönd dómnefndar og sagði m.a. í rökstuðningi sínum:
„Sá metnaður sem Lani Yamamoto hefur lagt í útgáfu barnabókarinnar Stína stórasæng er aðdáunarverður. Myndskreytingin er hér órjúfanlegur hluti sögunnar og bráðskemmtileg framlenging textans. Heildarhönnun og uppsetning er afar vönduð þar sem hver opna er úthugsuð og er myndrænt sterk.“

Stína stórasæng fjallar um stelpu sem hræðist það að vera kalt og beitir allri sinni hugvitssemi til að forðast kuldann. Hún kemst brátt að því að það er ekki alltaf skynsemin og vitið sem eru best til fallin til að halda á sér hita. Sagan er dæmisaga um að vinátta geti opnað nýjar dyr og veitt okkur hlýju. Myndirnar gefa sögunni aukna vídd, til dæmis með skírskotun í vinnuteikningar eða „blueprint“ af tækjum og tólum, uppfinningar sem geta bæði fangað okkur og frelsað. Til viðbótar má nefna skemmtilegt samstarf Lani við hönnunarteymið Vík Prjónsdóttur sem hannaði lestrarvettlinga utan um bókina fyrir þá sem kannast við það að vera alltaf kalt.

Einfaldleiki en um leið visst nostur í stíl Lani er eftirtektarverður en það sem styrkur hennar liggur hvað helst í – er hve sannfærandi karaktersköpun hún veitir sögupersónum sínum. Mætti helst nefna skemmtileg lítil sérkenni í líkamsstöðu eða líkamsbeitingu sem veitir þeim sérstæðan hversdagslega mannlegan karakter.“


Á sýningunni Þetta vilja börnin sjá! í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi má sjá þær bækur sem kepptu til verðlaunanna að þessu sinni. Sýningin er farandsýning og hafa sýningar síðustu ára verið settar upp víða um landið. Nánari upplýsingar á heimasíðu Gerðubergs, hér.
















Yfirlit



eldri fréttir