Fréttir

15.1.2014

Umsóknarfrestir hönnunarsjóðs á árinu 2014



Stjórn hönnunarsjóðs hefur tilkynnt umsóknarfresti í sjóðinn á árinu 2014. Á árinu verður ein megin úthlutun á verkefnastyrkjum en ferðastyrkjum verður úthlutað fjórum sinnum. Nú er opið fyrir umsóknir til ferðastyrkja. Í ár er framlag til sjóðsins 25 milljónir króna og fer Hönnunarmiðstöð Íslands ehf. með umsýslu sjóðsins.


Hönnunarsjóður hóf formlega starfsemi sína þann 30. september 2013 en sjóðurinn var stofnaður af mennta- og menningarmálaráðuneyti í febrúar fyrr á árinu. Framlag til sjóðsins árið 2013 var 45 miljónir. Í frumvarpi til fjárlaga sem kynnt var 1. október var ekki gert ráð fyrir fjármagni til sjóðsins en á lokaspretti fjárlagagerðarinnar var ákveðið að veita fé til hönnunarsjóðs á ný. Framlag til sjóðsins á árinu 2014 er 25 miljónir og lækkar því umtalsvert milli ára.

Megin hlutverk hönnunarsjóðs er að efla þekkingu, ásamt atvinnu- og verðmætasköpun á sviði hönnunar og arkitektúrs með fjárhagslegum stuðningi. Sjóðurinn styrkir jafnframt kynningar- og markaðsstarf erlendis sem stuðlar að auknum útflutningi íslenskrar hönnunar.

Stjórn hönnunarsjóðs metur styrkhæfi umsókna og ákveður afgreiðslu þeirra. Fimm manna stjórn er skipuð til þriggja ára í senn. Núverandi stjórn Hönnunarsjóðs skipa: Ólafur Mathiesen formaður, skipaður án tilnefningar, Íva Rut Viðarsdóttir varaformaður, Ástþór Helgason og Haukur Már Hauksson, öll tilnefnd af Hönnunarmiðstöð Íslands, ásamt Helgu Haraldsdóttur, tilnefnd af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti.

Frestur fyrir almennar umsóknir, þ.e. þróunar- og rannsóknarstyrki, verkefnastyrki, markaðs- og kynningarstyrki í hönnunarsjóð 2014:

15. apríl. Opnað fyrir umsóknir 15. febrúar.
Áætluð úthlutun um miðjan maí mánuð.

Frestir fyrir umsóknir um ferðastyrki verði sjálfstæðir og oftar á árinu:

17. febrúar. Opnað fyrir umsóknir 6. janúar.
15. apríl. Opnað fyrir umsóknir 15. febrúar.
1. september. Opnað fyrir umsóknir 15. júlí.
1. nóvember. Opnað fyrir umsóknir 15. september.

Eins og kemur fram hér að ofan hefur verið opnað fyrir umsóknir um ferðastyrki hönnunarsjóðs og hægt verður að sækja um í þessari atrennu til 17. febrúar 2014. Hver ferðstyrkur nemur 100.000 kr. Umsóknum skal skilað rafrænt í sérstöku umsóknarformi sem hægt er að nálgast á vefsíðu sjóðsins, sjodur.honnunarmidstod.is.
















Yfirlit



eldri fréttir