Fréttir

13.1.2014

Ljósmyndanámskeið fyrir hönnuði



Textílfélagið og Leirlistafélag Íslands standa að ljósmyndanámskeiði laugardaginn 18. janúar kl. 11-14:30 á Korpúlsstöðum. Þórdís Ágústdóttir ljósmyndari kennir. Námskeiðið er opið öllum hönnuðum.


Skráningarfrestur er til 15. janúar. Skráning fer fram með því að greiða þátttökugjald 3000 kr. inn á reikning Leirlistafélagsins 701-26-001049 kt. 550391-1049 og senda meil á arnfrid@internet.is.

Námskeiðið verður í formi fyrirlestrar og sýnikennslu. Markmið námskeiðsins er auka færni í að taka myndir af eigin verkum á eigin myndavélar. Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með sínar eigin myndavélar.

Í þátttökugjaldi er innifalinn léttur hádegisverður og námsgögn frá Þórdísi.
















Yfirlit



eldri fréttir