Fréttir

7.11.2013

Skúlaverðlaunin 2013



Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður og skartgripahönnuður hlaut Skúlaverðlaunin 2013. Árlega er efnt til verðlaunasamkeppni á meðal þátttakenda í jólasýningu HANDVERKS OG HÖNNUNAR. Verðlaunin eru kennd við Skúla Magnússon fógeta sem er frumkvöðull smáiðnaðar í Reykjavík.

Um þrjátíu tillögur bárust frá 20 aðilum. Þeir sem valdir voru til þátttöku í sýningunni nú í nóvember gátu tilkynnt til HANDVERKS OG HÖNNUNAR nýja vöru í verðlaunasamkeppni um besta nýja hlutinn. Skilyrðin voru að hlutirnir máttu hvorki hafa verið sýnis né sölu opinberlega fyrir sýninguna í Ráðhúsinu.

Fagleg valnefnd sem Guðbjörg Gissurardóttir grafískur hönnuður og Eva Vilhelmsdóttir fatahönnuður skipuðu valdi verðlaunahafa.

Skúlaverðlaunin 2013 hlaut Helga Ósk Einarsdóttir gullsmiður og skartgripahönnuður fyrir verkið „Jafnvægi“. Helga Ósk er einn af okkar fremstu gullsmiðum. Helga Ósk er með mjög persónulega og skemmtilegan stíl og vinnur einnig með gamla víraverkið á nýstárlegan hátt.

Auk verðlaunanna var veitt ein viðurkenning en hana hlaut Kristín Sigfríður Garðarsdóttir leirlistakona fyrir verkið „Doppur“. Verðlaunin eru styrkt af Samtökum iðnaðarins og var það Orri Hauksson fráfarandi framkvæmdastjóri sem afhenti verðlaunin.

Myndin að ofan er af vinningstillögunni „Jafnvægi“.
Myndin hér að neðan er af Helgu Ósk Einarsdóttur Skúlaverðlaunahafa 2013 ásamt Orra Haukssyni fráfarandi framkvæmdastjóra Samtaka Iðnaðarins og Kristínu S. Garðarsdóttur sem hlaut sérstaka viðurkenningu.

















Yfirlit



eldri fréttir