Fréttir

20.8.2013

Hönnuðir hittast á ný



Hönnunarmiðstöð mun standa fyrir mánaðarlegum opnum fræðslu- og spjallfundum annan veturinn í röð. Fundirnir munu að mestu leyti snúast um HönnunarMars og sitthvað hagnýtt sem tengist þátttöku í hátíðinni. Boðað er til þess fyrsta miðvikudaginn 4. september kl. 17.30-19 á Bergsson Mathúsi, Templarasundi 3.


Fundirnir eru upplagðir ef:
Þú fefur áhuga á því að vera með viðburð á HönnunarMars 2014.
Þú villt fá hagnýtar upplýsingar um þátttöku á HönnunarMars 2014.
Þig langar til að nýta þau tækifæri til fullnustu sem HönnunarMars getur gefið þér.
Þú villt tengast fólki í hönnunargeirnum og/eða bæta tengslanet þitt enn betur
.

Efnistaki fundanna er ætlað að vera gagnlegt hönnuðum og miðla hagnýtum upplýsingum um þátttöku í HönnunarMars og taka á viðfangsefnum sem tengjast hönnunarsenunni. Fundirnir verða haldnir mánaðarlega í ljúfu umhverfi Mathúss Bergsson, Templarasundi 3, þar sem hægt er að gæða sér á dýrindis veitingum í leiðinni.

Dagskrá fundanna í vetur:

4. sept. | Hönnuðir hittast á ný

Farið verður yfir umgjörð hátíðarinnar almennt og hvernig fyrirkomulagi hennar er háttað. Hvernig eiga hönnuðir og arkitektar að snúa sér hafi þeir áhuga á að taka þátt í HönnunarMars 2014? Jafnframt verður haldin stutt kynning á fyrirkomulagi samkeppninarinnar um einkenni HönnunarMars 2014.

2. október | Kynning á erlendum hönnunarhátíðum
6. nóvember | Framsetning verkefna, miðlun og markaðssetning
4. desember | Verkefni í vinnslu fyrir HönnunarMars 2014
-
8. janúar | Þátttaka í kaupstefnunni DesignMatch
5. febrúar | Skráning í dagskrá, spurningar og svör
5. mars | Upptaktur að HönnunarMars, erlendir blaðamenn og samskipti við fjölmiðla
2. apríl | Endurmatsfundur

Verið með í Hönnuðir hittast hópnum á Facebook, hann finnið þið hér.
















Yfirlit



eldri fréttir