Fréttir

20.5.2013

Fellafest í Fellagörðum Breiðholti



Laugardaginn 15. júní kl. 12:00-17:00 verður blásið til veislu í Fellagörðum í Breiðholti undir nafninu Fellafest. Meðal þess sem verður í boði er kynning á starfsemi Fellagarðshópsins en hann sá um uppbyggingu á Hjartagarðinum í fyrra og ætlar að lífga upp á Breiðholt í sumar.


Allir sem hafa áhuga á uppbyggingu og fegrun Fellagarða fá þarna kjörið tækifæri til að taka þátt og koma með hugmyndir að uppbyggingu svæðisins.

Nánar um Fellafest má finna á facebook síðu viðburðarins, hér.
















Yfirlit



eldri fréttir