Fréttir

29.5.2013

Skrýmslaerjur tilnefnd til bókaverðlauna Norðurlandaráðs


Barna og unglingabókaverðlaun Norðurlandaráðs verða veitt í fyrsta skiptið í oktober 2013. Fjórtán bækur voru tilnefndar í þessum flokki og á með þeirra er Skrímslaerjur sem Áslaug Jónsdóttir myndskreytir, umbrýtur, hannar og semur. Meðhöfundar hennar af bókinni eru Kalle Güettler (Svíþjóð) og Rakel Helmsdal (Færeyjum).

Bækurnar um litla og stóra skrímslið hafa notið mikilla vinsælda hjá lesendum bæði á Íslandi og erlendis. Með þessum „mannlegu“ skrímslum hafa höfundarnir náð að búa til sérlega skemmtilegar og áhugaverðar persónur sem börn eiga auðvelt með að samsama sig við og fullorðnir hafa haft gaman af. Innbyrðis samband skrímslanna er bæði fallegt og flókið og í þessari bók, sem er sú sjöunda í röðinni, slær í brýnu á milli þeirra og lítur út fyrir að illa fari.

Í Skrímslaerjum má sjá mörg af bestu einkennum ritraðarinnar. Mynd og texti eru fléttuð saman í eina heild – listaverk – frá byrjun til enda. Á þann hátt er lesandinn hvattur til að lesa mynd og texta sem heild – og það er einmitt samspil þessa tveggja þátta sem er sérlega vel gert og hugmyndaríkt. Texti bókarinnar er einfaldur og verður hluti af myndverkinu með einföldum myndum og formsterkum klippimyndum ásamt persónum með greinileg skapgerðareinkenni, ýkta andlitsdrætti og ofhlaðna líkamstjáningu. Bækurnar ná til barnanna með húmor og sálfræðilegri dýpt bæði tilfinningalega og vitsmunalega.

Áslaug Jónsdóttir er myndskreytir, barnabókahöfundur, listamaður og grafískur hönnuður. Hún hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir list sína, m.a. Dimmalimm – íslensku myndskreytiverðlaunin fyrir myndskreytingar í barnabókum.

Nánari upplýsingar um verðlaun og tilnefningar Norðurlandaráðs fyrir barna og unglingabókmenntir, hér.
















Yfirlit



eldri fréttir