www.XLAND.is er ný heimasíða þar sem verkum landslagsarkitekta á
höfuðborgarsvæðinu er komið á kortið í bókstaflegum skilningi. Í
tengslum við opnun heimasíðunnar var haldin gagnvirk sýning í
Hafnarhúsinu, Listasafni Reykjavíkur á HönnunarMars. Á síðunni er hægt
að vafra um vel hönnuð og lifandi borgarrými.
Sé smellt á verk opnast gátt margvíslegra upplýsinga um það með ljósmyndum, teikningum grafískum skissum og texta. www.XLAND.is er kærkomin viðbót í afþreyingarflóru höfuðborgarinnar þar sem hægt er að fletta upp almenningsrýmum í þínu nærumhverfi þar sem þú ert á ferðinni í gegnum tölvu, i-pad, síma o.s.frv.
XLAND er lifandi gátt sem býður þér, fjölskyldu þinni og vinum í
ferðalag um vel hönnuð borgarrými. Félag íslenskra landslagsarkitekta
stendur fyrir fyrstu gagnvirku sýningunni þar sem verkum
landslagsarkitekta á höfuðborgarsvæðinu er safnað saman á einn stað. Á
www.XLAND.is kemst þú í návígi við hönnuðina og hugsunina sem liggur að
baki þínu nánasta umhverfi.