Fréttir

13.2.2013

Fyrirlestradagur HönnunarMars

Upphafstaktur HönnunarMars 2013 er líkt og undanfarin ár spennandi fyrirlestradagur þar sem framúrskarandi hönnuðir og fagfólk veitir innblástur með þekkingu sinni og reynslu. Hvað þýða galdrar í ólíku samhengi? Hvað hamlar og hleypir göldrum af stað? Hver er galdurinn í sköpunarkraftinum? Hvernig getum við betur tengt hug og hönd? Hulduheimur Þjóðleikhússins umvefur gesti. Komdu og finndu galdurinn.

Meðal fyrirlesara eru::


Juliet Kinchin – hönnunarsagnfræðingur og sýningarstjóri hjá MoMA.
Maja Kuzmanovic - framsækinn hönnuður með víðtæka reynslu af þverfaglegu samstarfi.
Inge Druckrey - grafískur hönnuður sem býr yfir 40 ára dýrmætri reynslu og hefur um langt skeið rannsakað sjónskynjun. Kynnir og stjórnandi umræðna er Hrund Gunnsteinsdóttir, mannfræðingur, átakasérfræðingur, ljóðskáld og handritshöfundur heimildamyndar um innsæi.

Juliet Kinchin
er sýningarstjóri í hönnunar- og arkitektúrdeild MoMA og starfaði áður sem sýningarstjóri hjá Victoria og Albert Museum. Juliet gegnir stöðu honorary research fellow við Glasgow háskóla og hefur mikinn áhuga á og skrifar um hlutverk nútímahönnunar í félagslegu og pólitísku samhengi. Juliet hefur áður kennt við Glasgow School of Art og Bard Gradutate Center.

Inge Druckrey er grafískur hönnuður og á 40 ára glæstan starfsferil að baki sem bæði starfandi hönnuður og prófessor í Kunstgewerbeschule í Basel í Sviss. Inge hefur helgað ævistarf sitt hugmyndum um töfra augans og æfingum til að læra að nota sjónina betur í hversdagslífinu og njóta meiri fegurðar. Heimildamynd um Inge Teaching to See kom út 2012 og naut mikillar hylli gagnrýnenda. Hér fyrir neðan er sérlega falleg heildamynd um verk Inge, leikstýrð og klippt af Andrei Severny og framleidd af Edward Tufte:

Maja Kuzmanovic er stofnandi FoAM, þar sem hún leiðir metnaðarfullan hóp þverfaglegs teymis m.a. hönnuða, listamanna, kokka, garðyrkjumanna og vísindamanna. Maju er erfitt að skilgreina en FoAM hefur meðal annars að leiðarljósi að rækta menninguna til að næra samfélag framtíðarinnar. Maja var útnefnd ein af Top 100 Young Innovators (1999) og Young Global Leader (2006) af World Economic Forum og MIT Technology review.

Á meðal þeirra sem veitt hafa gestum fyrirlestradagsins innblástur fyrri ár er fólk í fararbroddi á sínu sviði sem hefur með störfum sínum haft mótandi áhrif og má þar nefna Winy Maas, Ilkka Suppanen, Sigga Eggertsson, Bjarke Ingels og Paul Bennett.

Almennt miðaverð: 5.900kr. á Miði.is
Miðar í forsölu til 1. mars: 3.900kr. í miðasölu Þjóðleikhússins, s. 551 1200.

Léttur hádegisverður innifalinn í miðaverði.
Fyrirlestradagurinn er hluti af HönnunarMars og skipulagður af Hönnunarmiðstöð og haldinn í samstarfi við Íslandsbanka.


Hér fyrir neðan má sjá sérlega fallega heimildamynd um Inge Druckrey, leikstýrð og klippt af Andrei Severny og framleidd af Edward Tufte:

Inge Druckrey: Teaching to See from Edward Tufte on Vimeo.

















Yfirlit



eldri fréttir