Fréttir

7.1.2013

Auglýst eftir ábendingum fyrir Steinsteypuverðlauni 2013



Steinsteypufélag Íslands leitast stöðugt við að vekja athygli á mikilvægi steinsteypu í umhverfi okkar enda steinsteypa helsta byggingarefni Íslendinga. Stjórn félagsins hefur ákveðið að velja steinsteypt mannvirki ársins í þriðja sinn. Veitt verður viðurkenning fyrir mannvirki þar sem saman fer frumleg og vönduð notkun á steinsteypu í manngerðu umhverfi.

Við valið verður haft að leiðarljósi að mannvirkið:
− sýni steinsteypu á áberandi hátt
− sé framúrskarandi vegna arkitektúrs, verkfræðilegra lausna og handverks
− búi yfir frumleika og endurspegli þekkingu í meðferð og notkun steinsteypu
− auðgi umhverfið, inniberi gæði, glæsileik og nytsemi og sýni augljósan metnað í samhengi við umhverfi sitt
− sé byggt á síðustu fimm árum og í notkun

Viðurkenningin verður veitt mannvirkinu og þeim aðilum sem að því standa, svo sem verkkaupa, hönnuðum og framkvæmdaaðilum. Hún verður afhent á Steinsteypudegi í febrúar 2013.

Verkið verður valið af starfshópi sem í eiga sæti:
Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, formaður Steinsteypufélag Íslands
Ólafur Wallevik Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Steinþór Kári Kárason Listaháskóli Íslands
Björn Marteinsson Verkfræðingafélag Íslands
Jóhann Einarsson Arkitektafélag Íslands

Leitað er eftir ábendingum frá verk- og tæknifræðingum, arkitektum, listamönnum og iðnaðarmönnum í gegnum samtök þeirra og frá skipulags- og bygginganefndum.

Óskað er eftir því að ábendingar berist undirritaðri fyrir 24. janúar 2013. Ábendingum fylgi eftirtalin gögn:
- heiti mannvirkis og staðsetning
- verkkaupi
- hönnunarteymi
- framkvæmdaaðili og - framkvæmdaár
- hvenær tekið í notkun
- stutt lýsing á mannvirki, kennistærðir og hlutverk steinsteypu
- ljósmyndir og / eða myndbönd (teikningar óþarfar)

Nefndin áskilur sér rétt til að meta mannvirki á innsendum gögnum sem og að óska eftir frekari upplýsingum um verkið.

Nánari upplýsingar eru á vef Steinsteypufélagsins www.steinsteypufelag.is

Ljósmynd: Sundlaugin á Hofsósi eftir Basalt arkitekta. Verkið hlaut Steinsteypuverðlaunin 2011, sjá nánar hér.
Ljósmyndari: Guðmundur Benediktsson
















Yfirlit



eldri fréttir