Fréttir

7.1.2013

Markaðs- og söluþjálfun fyrir mannvirkjahönnuði



Íslandsstofa kynnir verkefni í markaðs- og söluþjálfun fyrir starfsmenn fyrirtækja í mannvirkjahönnun. Verkefnið gagnast einkum starfsmönnum arkitekta- og verkfræðistofa sem sjá um markaðsstarf og öflun verkefna erlendis. Áhersla í verkefninu er á Noreg sem markaðssvæði.

Verkefnið skiptist í þrjá vinnufundi þar sem farið verður yfir ýmis hagnýt atriði sem nýtast við undirbúning markaðsstarfs og í samskiptum við væntanlega kaupendur í Noregi. Í maí er áætluð markaðsheimsókn til Noregs þar sem skipulagðir verða viðskiptafundir og fyrirtæki heimsótt.

Dagskrá:

* Vinnufundur 30. janúar: söluskilaboð og markaðsefni, menningarlæsi og samningatækni
* Vinnufundur 20. febrúar: samskiptahæfni, sölutækni og þjónusta
* Vinnufundur 11.-13. mars: kynningartækni og kynningar fyrir erlendum kaupendum
* Markaðsheimsókn í maí: Osló, Stavanger og Bergen

Þátttökugjald fyrir vinnufundina þrjá er kr. 160.000. Innifalið í gjaldinu eru öll gögn, veitingar og gisting á síðasta vinnufundi. Kostnaður vegna Noregsferðar er ekki innifalinn í þátttökugjaldi.

Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að fylla út meðfylgjandi umsókn um þátttöku í verkefninu og senda á Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is.

Nánari upplýsingar veita:
Björn H. Reynisson, bjorn@islandsstofa.is,
Erna Björnsdóttir, erna@islandsstofa.is og
Hermann Ottósson, hermann@islandsstofa.is
















Yfirlit



eldri fréttir