Út er komin bókin Gunnar Magnússon,
húsgögn og innréttingar. Hönnunarsafn Íslands gefur bókina út í samstarfi við fjölskyldu
Gunnars. Dr. Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur hefur rannsakað feril Gunnars, hún ritar
ítarlegan texta um feril hans og lýsir helstu
verkum í máli og myndum.
Gunnar Magnússon er meðal afkastamestu og frumlegustu húsgagnahönnuða og innanhúss-
arkitekta okkar og hefur markað djúp spor í sjónræna vitund og daglegt umhverfi margra Íslendinga. Á yfir fjörutíu ára starfsferli teiknaði hann húsgögn og innréttingar fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir, hannaði skákborðið fyrir „einvígi aldarinnar“, vann að hönnun innréttinga
í skip og flugvélar, tók þátt í fjölda sýninga og
kenndi um árabil við Iðnskólann í Reykjavík. Þar hafði hann sterk áhrif á komandi kynslóðir
hönnuða og handverksmanna.
Snæfríð Þorsteins og Hildigunnur Gunnarsdóttir hönnuðu bókina og ljósmyndir voru teknar af Vigfúsi Birgissyni.
Bókin verður til sölu í bókaverslunum, hönnunarbúðum og galleríum.