Höfnin er innblásturskvöld hugsað fyrir hönnuði á Íslandi. Höfnin er byggð upp á örfyrirlestrum og verkefnakynningum hönnuða og/eða fyrirtækja sem haldnir eru í léttu andrúmslofti. Höfnin er opin öllum þeim sem hafa áhuga á hönnun og vilja mynda frekari tengsl innan hönnunargeirans.
Fyrsta kvöldið verður haldið á Faktorý kl 19:30 þann 13 des. Hönnuðirnir sem tala fyrsta kvöldið eru Siggi Odds, Ármann Agnarsson og Lóa Hjálmtýsdóttir.
Höfnin er skipulögð í samstarfi við FÍT.
Sjá nánar á
www.facebook.com/innblasturstimi