Skýrsla um aðkomu hins opinbera að skapandi greinum á Íslandi, Skapandi greinar – sýn til framtíðar, var kynnt þann 19. oktober s.l. í Hörpu.
Skýrslan er unnin af starfshópi á vegum fjögurra mennta- og menningarmálaráðuneytis, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, utanríkisráðuneytis, Íslandsstofu og Samtökum skapandi greina. Hún fjallar um hvernig hið opinbera, ríki og sveitarfélög, haga stuðningi sínum við skapandi greinar með lagasetningu, stjórnsýslu, fjárveitingum og fjárfestingu í menntun, rannsóknum og innviðum.
Gerð er grein fyrir þeirri stefnu sem fyrir liggur og fjallað um hvernig hún hefur verið framkvæmd. Á grundvelli þessara upplýsinga leggur starfshópurinn fram 19 tillögur að bættu starfsumhverfi skapandi greina.
Í tillögum sínum leggur starfshópurinn áherslu á að skapandi greinar séu atvinnugrein sem snerti mörg svið atvinnulífs, menningarlífs og mannlífs. Því sé mikilvægt að tryggja þverfaglegt samstarf stjórnsýslu, atvinnulífs og menningarlífs til þess að stuðla að uppbyggingu greinarinnar.
Skýrsluna ásamt samantektarglærum, sem notaðar voru til kynningar í Hörpu, má hlaða niður á PDF. formati á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar
hér.