Fréttir

5.10.2012

Leitað að hönnuðum | Einkenni HönnunarMars 2013


 
HönnunarMars er stærsta sameiginlega verkefni íslenskra hönnuða ár hvert og um leið stærsta kynningarverkefni Hönnunarmiðstöðvar, hérlendis og erlendis. Næsti HönnunarMars, sá 5. í röðinni, verður haldinn dagana 14. - 17. mars 2013.

Á undanförnum árum hafa verið farnar ýmsar leiðir við gerð einkennis HönnunarMars ár hvert. Að þessu sinni hefur verið ákveðið að leita að áhugasömum hönnuðum eða hönnunarhópum til að vinna einkenni HönnunarMars 2013. Einkenni HönnunarMars getur verið grafík, teikning, ljósmynd eða í raun hvaða myndheimur sem er. Skilyrðið er að hann sér einkennandi, skýr, og henti kynningu á stórri hátíð sem þessari.

Öllum hönnuðum eða hönnunarhópum sem áhuga hafa á að útbúa einkenni HönnunarMars 2013 er heimilt að sækja um.

Valið fer þannig fram:

1. skref
Hönnuðir / hönnunarhópar lýsa áhuga sínum á því að fá að taka þátt í valinu. Beðið er um í 1. skref CV þátttakenda og stutta skriflega lýsingu á hvers vegna viðkomandi vill taka þátt í verkefninu (max 1 x A4 síða). Skilafrestur er til 9. október. Mikilvægt er að eitt netfang og símanúmer fylgi umsókninni. Undirstrikað skal að hér er ekki leitað eftir hugmyndum um einkennið / kynningarefnið sjálft.

2. skref
3 hönnuðir/hópar verða valdir út innsendum umsóknum til að senda inn tillögur. Hver hópur fær 70.000kr. fyrir tillögurnar. Hönnunarmiðstöð greiðir þar að auki 200.000kr. fyrir tillöguna sem valin verður til notkunnar og 100.000kr. til viðbótar fyrir frekari útfærslu. (Tölurnar innihalda vsk.)

3. skref
Í kjölfarið verða valdir grafískir hönnuðir til að útbúa kynningarefni HönnunarMars í heild með hliðsjón af því einkenni sem þá hefur verið valið. Hér skal tekið fram að hafi hönnuður eða hönnunarhópur áhuga á að vinna kynningarefnið í heild, má nefna það í innsendri umsókn í 1. skrefi.

Helstu dagssetningar:

27. september – Opnað fyrir umsóknir til þátttöku.
9. október – kl. 12:00 – áhugasamir skila inn umsóknum um þátttöku, sjá 1. skref.
12. október – kl. 14:00 – fundur með völdum þátttakendum um verkefnið, sjá 2. skref.
1. nóvember – kl. 12:00 – skil á tillögum. Stjórn og verkefnastjóri HönnunarMars 2013 velja bæði hópana úr innsendum umsóknum (1. skref) sem og tillöguna til notkunnar.

Stjórnin áskilur sér rétt til að hafna öllum tillögum. Fyrirspurnir þurfa að berast fyrir fimmtudaginn 4. október á netfangið samkeppni@honnunarmidstod.is Öllum spurningum verður svarað og svörin birt á heimasíðu Hönnunarmiðstöðvar www.honnunarmidstod.is þann 5. október 2012.

Umsóknir um þátttöku sendist á samkeppni@honnunarmidstod.is fyrir 12:00  á hádegi 9. október.


Spurning og svar


Hver er ástæðan fyrir því að senda á inn CV frekar en möppu með fyrri verkum?

Ætlunin er sú að hönnuðir þurfi í raun ekki að leggja í vinnu vegna umsóknar í 1. skrefi. Þess vegna er beðið um ferilskrá (CV). Ferilskrá hönnuða getur auðvitað innihaldið upplýsingar og fylgigögn af margskonar tagi.
















Yfirlit



eldri fréttir