Fréttir

6.9.2012

Spjall við hönnuði: „Saga til næsta bæjar“ | Matarhönnun í Hönnunarsafni Íslands sunnudaginn 9. sept. 2012, kl. 14



Næstkomandi sunnudag verður fjallað um íslenska matarhönnun í Hönnunarsafni Íslands. Harpa Þórsdóttir forstöðumaður safnsins mun leiða spjall með hönnuðunum Brynhildi Pálsdóttur og Auði Ösp Guðmundsdóttur og súkkulaðimeistaranum Hafliða Ragnarssyni um sýninguna „Sögu til næsta bæjar.“ Rætt verður um matarhönnun og það samstarf sem getur skapast á milli ólíkra starfsgreina eins og gerðist við gerð Súkkulaðifjalla Brynhildar og Hafliða og við vinnuna á Búbótarís sem Auður Ösp vann með fleirum. Spjallið mun eflaust fá fólk til að fá vatn í munninn, en þau matarverkefni sem hafa verið unnin á síðustu árum að frumkvæði hönnuða hafa þótt forvitnileg og áhugaverð og orðið til þess að fleiri tækifæri hafa opnast á þessum vettvangi. Matgæðingar hvattir til að mæta og taka þátt í spjallinu.
















Yfirlit



eldri fréttir