Fréttir

10.8.2012

Áminning: Framkvæmdasjóður ferðamannastaða | Umsóknarfrestur til 10.september



Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum um styrki til uppbyggingar á ferðamannastöðum fyrir árið 2013. Hlutverk sjóðsins og markmið er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Með fjármagni úr sjóðnum skal leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk ef skilyrði eru uppfyllt. Fresturinn rennur út 10. september.

Nánari upplýsingar, skilyrði og umsóknarform er að finna á síðu Ferðamálastofu.
















Yfirlit



eldri fréttir