Fréttir

18.7.2012

Verkefnastyrkir og ferða- og menntunarstyrkir Myndstefs | Umsóknarfrestur nálgast



Nú fer hver að verða síðastur til að sækja um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki Myndstefs!

Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir myndhöfundar. Aðilar að samtökunum eru félög myndlistarmanna, ljósmyndara, teiknara, leikmynda- og búningahöfunda, arkitekta, hönnuða og ýmissa annarra stofnanna og einstaklinga sem fara með höfundarétt myndverka.

Umsóknareyðublöð má finna á vef samtakanna www.myndstef.is og þar koma einnig fram þau atriði sem þurfa að koma fram í umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna. EInnig er þar listi yfir styrkþega síðasta árs.

Umsóknarfrestur rennur út 18. ágúst 2012.

Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16, p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma. Þeir sem sent hafa inn umsóknir um styrki fyrir miðjan júní þessa árs verða að endurnýja þær umsóknir.

Allar nánari upplýsingar gefur Ólöf Pálsdóttir á opnunartíma skrifstofunnar, 10:00 – 14:00 alla virka daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á myndstef@myndstef.is
















Yfirlit



eldri fréttir