Fréttir

12.7.2012

Hugmyndasamkeppni | Stöng í Þjórsárdal



Fornleifavernd ríkisins í samvinnu við Skeiða- og Gnúpverjahrepp og Arkitektafélag Íslands efnir í sumar til almennrar hugmyndasamkeppni um tillögur að hönnun ásýndar og umhverfis fornleifa sem eru við Stöng í Þjórsárdal.

Með verkefninu sem hér er kynnt er minjastaður á Íslandi í fyrsta skipti hannaður heildrænt með hliðsjón af umhverfisþáttum og með það í huga að gera hann aðgengilegan og áhugaverðan fyrir almenning. Hér er því um frumkvöðlaverkefni að ræða. Áhugi er fyrir að gera sem flestar af fornleifunum í dalnum aðgengilegar fyrir ferðamenn á næstu árum. Hugsanlegt er að yfirfæra megi hugmyndina að fullu eða að hluta yfir á aðrar fornleifar í dalnum. Markmiðið er að nýta megi lausnina sem tillögu að því hvernig megi vinna að svipuðum verkefnum í framtíðinni á öðrum íslenskum minjastöðum.

Samkeppnisgögn verða afhent gegn 5.000.- kr. skilagjaldi frá og með 12. júlí 2012 á skrifstofu Arkitektafélags Íslands, Engjateigi 9, Reykjavík, á milli kl. 09:00 og 13:00 virka daga. Skrifstofan er þó lokuð á tímabilinu frá 16. júlí til 7. ágúst og á því tímabili er hægt að nálgast gögnin með því að hafa samband við trúnaðarmann samkeppninnar í síma 899 6225 eða með tölvupósti á netfangið harh@simnet.is.

Skilafrestur er til 28. september 2012. Tillögum skal skila til trúnaðarmanns á skrifstofu Arkitekafélags Íslands að Engjateig 9.

Samkeppnislýsingu má finna hér.



www.ai.is
www.fornleifavernd.is
















Yfirlit



eldri fréttir