Fréttir

15.6.2012

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða | Umsóknir óskast



Hlutverk sjóðsins og markmið er að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun ferðamannastaða í opinberri eigu eða umsjón um land allt. Með fjármagni úr sjóðnum skal leitast við að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins. Einnig er sjóðnum ætlað að fjölga viðkomustöðum ferðafólks til að draga úr álagi á fjölsótta ferðamannastaði.

Öllum sem hagsmuna eiga að gæta er frjálst að sækja um styrk. Nánari upplýsingar, skilyrði og umsóknarform er að finna á síðu Ferðamálastofu.
















Yfirlit



eldri fréttir