Hönnunarsamkeppni um hönnun hjólastæða, hjólaskýla og annarra
hjólagagna í Reykjavíkurborg. Að keppninni standa Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands
í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.
Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands efna til samkeppni um hönnun
hjólastæða (boga, veggfestinga, léttra standa) hjólaskýla (lokaðra,
læstra, hálfopinna, opinna) og annarra hjólagagna sem létta
hjólreiðafólki lífið í borgarumferðinni (hjólapumpur,hjólalæsingar
merkingar o.fl.).
Lýst er eftir grundvallarhugmyndum að
hentugum hjólastæðum, hjólaskýlum og öðrum munum eða mannvirkjum sem
auðveldað geta hjólreiðafólki að nýta reiðhjól sem samgöngumáta í
borginni. Um ólíkar útfærslur getur verið að ræða í miðborg og utan
miðborgar. Æskilegt er að í tillögum verði tekið tillit til þeirra
götugagna sem fyrir eru í umhverfinu, útlit og hentugleika á hverjum
stað fyrir sig. Einnig getur verið um að ræða ólíka hönnun við
vinnustaði og í opnu rými borgarinnar. Keppendur ráða sjálfir hvaða
staðsetningu þeir miða hönnun sína við og hve marga muni eða mannvirki
þeir kjósa að sýna. Þó skal hver tillaga að lágmarki sýna eitt
hjólastæði, eitt hjólaskýli og eina frumlega hugmynd að einhverju sem
gegnlegt getur talist fyrir hjólreiðarfólk í borgarumhverfinu.
Útbjóðandi telur sig ekki skuldbundinn til að nýta neinar af þeim
tillögum sem berast en áskilur sér rétt til að semja um útfærslu allra
tillagna við höfunda.
Nánari upplýsingar, leiðbeiningar og keppnislýsingu er að finna á vef
Reykjavíkurborgar.