HANDVERK
OG HÖNNUN
í Ráðhúsi Reykjavíkur
1. til 5. nóv. 2012
UMSÓKNARFRESTUR TIL 8. JÚNÍ 2012
HANDVERK OG HÖNNUN heldur sýningu/kynningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur í byrjun nóvember.
Sýningin stendur í 5 daga og er aðgangur ókeypis.
Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og fjölbreytta hönnun s.s. vöruhönnun, fatahönnun er heimilt að sækja um. Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur. Mikilvægt er að sýningin/kynningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar valið er inn.
Umsækjendur eru hvattir til að hafa þessa árstíð í huga þegar þeir velja listmuni/vörur til kynningar.
Umsóknir um þátttöku verða að berast sem fyrst en í síðasta lagi 8. júní.
Niðurstaða valnefndar mun liggja fyrir í síðasta lagi 19. júní 2012
Umsóknareyðublöð má nálgast á
vefsíðu Handverks og hönnunar.