Fréttir

14.5.2012

Laust er til umsóknar starf verkefnastjóra




Hönnunarmiðstöð Íslands óskar eftir að ráða framsækinn og kraftmikinn einstakling í starf verkefnastjóra. Starfið er mjög fjölþætt en verkefnastjóri ber ábyrgð á að leysa úr fjölbreytilegum verkefnum sem upp koma í Hönnunarmiðstöð, s.s. upplýsingagjöf, kynningarmál og samskipti. Einnig ber verkefnastjórinn ábyrgð á að halda úti vefsíðu með öflugum gagnabanka og stjórnun ýmissa sérverkefna. Um framtíðarstarf er að ræða fyrir réttan einsstakling.

Lykilverkefni verkefnastjóra eru:
  • Vefumsjón, fréttir og fréttabréf, umsjón með samfélagsmiðlum
  • PR - samskipti við fjölmiðla og fréttaflutningur
  • Almenn skrifstofustörf, ráðgjöf og þjónusta, símsvörun og úrlausn mála
  • Verkefnastjórnun, m.a. umsjón með fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar
  • Verkefna- og styrkumsóknir á Íslandi og erlendis

Menntunar- og hæfniskröfur:
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfinu
  • Góð þekking á hönnun og umhverfi hönnuða hvoru tveggja á Íslandi og erlendis
  • Góð íslenskukunnátta skilyrði sem og færni í textaskrifum
  • Góð enskukunnátta skilyrði, kunnátta í norðurlandamáli mikill kostur
  • Þekking á vefumhverfi og samfélagsmiðlum, tölvu og tæknilæsi
  • Sjálfstæði í vinnubröðgum og mikill áhugi á starfinu

Umsjón með starfinu hefur Ragnheiður Dagsdóttir (ragnheidur.dagsdottir@capacent.is) hjá Capacent Ráðningum. Umsóknarfrestur er til og með 20 maí nk. Starfsmaður hefur störf um miðjan ágúst. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á heimasíðu Capacent Ráðninga, www.capacent.is. Umsóknum eiga að fylgja ítarlegar starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið.


Hönnunarmiðstöð Íslands er kynningar- og upplýsingamiðstöð fyrir íslenska hönnun á Íslandi og erlendis. Meginhlutverk Hönnunarmiðstöðvar er að efla skilning þjóðarinnar á mikilvægi hönnunar fyrir samfélagið og íslenskt efnahagslíf og benda á þá miklu verðmætasköpun sem getur falist í hönnun fyrir þjóðfélagið allt. Hönnunarmiðstöð stuðlar að framgangi íslenskra hönnuða erlendis, enda eru þar stór tækifæri fyrir íslenska hönnun og framleiðsluvörur.
















Yfirlit



eldri fréttir