|
|
Ljósmyndari: Kristveig Halldórsdóttir
|
|
|
Félagar í Textilfélagi Íslands opna sýningu kl. 13.00 á opnu húsi í stóra salnum á 2. hæð á Korpúlfsstöðum laugardaginn 3. mars en henni lýkur svo sama dag og HönnunarMars lýkur þann 25. mars nk. Sýningin verður opin kl. 14-18 fimmtudaga til sunnudaga.
Fjölbreytnin er mikil og gefur góða mynd af þeirri miklu breidd sem þráðlistir á Íslandi spanna um þessar mundir. Á sýningunni má sjá prjónahönnun, fatahönnun, veflistaverk, tauþrykk, þæfingu, útsaum, pappírsverk, ljósmyndaverk, ljósahönnun og margskonar óhefðbundin þráðlistaverk unnin í blandaðri tækni.
Textilfélag Íslands var stofnað árið 1974 af nemendum og kennurum textildeildar Myndlista- og handíðaskólans ásamt starfandi textíllistamönnum. Eitt af aðalmarkmiðum félagsins hefur frá upphafi verið að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og kynna list þeirra á innlendum og erlendum vettvangi.
Í dag eru félagskonur 80 og þátttakendur á sýningunni 40 eða um helmingur þeirra. Það er mikið gleðiefni að svo stór hluti félagsmanna eigi verk þar.
Verið öll velkomin, aðgangur er ókeypis.
Sýning Textilfélags Íslands á Korpúlfsstöðum
stendur til 25. mars
og er opin fimmtudaga til sunnudaga
frá klukkan 14 - 18.
Sýningin var áður sett upp á þremur stöðum á Listasumri á Akureyri í
júlí sl. í Mjólkurbúðinni, Ketilhúsinu og Menningarhúsinu Hofi.
Formaður Textilfélagsins er Ásdís Birgisdóttir
Símar: 565 5482 / 895 2745
Netfang:
asdisbirgis@simnet.is