Fréttir

19.12.2011

Jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra

Íslensk hönnun og ritsnilld í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
 
Leppalúði er viðfangsefni hönnuðarins Ingibjargar Hönnu Bjarnadóttur og Ingibjargar Haraldsdóttur ljóðskálds en þær leggja Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra lið í ár við gerð jólaóróans. Ingibjörg Hanna fæst við stálið og Ingibjörg við orðin.

Leppalúði er sjötti óróinn í jólasveinaseríu Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Frá upphafi hafa margir af þekktustu hönnuðum og skáldum okkar Íslendinga lagt félaginu lið við gerð óróanna. Þegar hafa Sigga Heimis og Sjón túlkað Kertasníki, Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir og Andri Snær Magnason túlkað Hurðaskelli, Katrín Ólína Pétursdóttir og Hallgrímur Helgason Grýlu, Hrafnkell Birgisson og Gerður Kristný Ketkrók og síðustu jól túlkuðu Snæfríð Þorsteins, Hildigunnur Gunnarsdóttir og Þórarinn Eldjárn Jólaköttinn.

ALLUR ÁGÓÐINN Í ÞÁGU FATLAÐRA BARNA OG UNGMENNA
Æfingastöðin sem rekin er af Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra er langstærsti aðili í endurhæfingu barna og ungmenna á Íslandi. Þjónustuna nýta um 850 börn árlega, mörg hver oft í viku. Æfingastöðin gegnir því veigamiklu hlutverki í íslensku samfélagi og er starfið sem þar fer fram brýnt enda er markmið þjálfunarinnar að efla börn og ungmenni með skerta færni og stuðla að virkri þátttöku þeirra í samfélaginu. Allur ágóði af sölu óróanna rennur óskiptur til þróunar og eflingar þessa mikilvæga starfs.

ÓSLÓARTRÉÐ PRÝTT JÓLAÓRÓUM SLF
Óróar Styrktarfélagsins hafa undanfarin ár að prýtt Óslóartréð, jólatré Reykvíkinga og verið eina skrautið á trénu utan jólaljósanna.

ENSKIR OG ÍSLENSKIR BÆKLINGAR
Óróarnir eru framleiddir hjá Geislatækni í Garðabæ og pakkað af einstökum áhuga og natni hjá Vinnustofunni Ási. Verkefnið er því atvinnuskapandi auk þess að sameina íslenska hönnun, ritsnilld, menningararf og gott málefni. Óróarnir koma í hentugri pakkningu sem passar í umslag. Þeim fylgja fallegir bæklingar á ensku og íslensku sem innihalda m.a. kvæðið sem Ingibjörg Haraldsdóttir orti um Leppalúða af þessu tilefni.

Nánari upplýsingar á www.slf.is og hjá Berglindi Sigurgeirsdóttur hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra s.535-0900.
















Yfirlit



eldri fréttir