Icelandic Contemporary Design í Design Forum Finland 1. 12. 2011 – 8. 1. 2012
Opnun sýningarinnar Icelandic Contemporary Design í Design Forum Finland í Helsinki markar upphafið að víðfeðmu samstarfi milli íslenskra hönnuða og
World Design Capital Helsinki 2012, þangað sem augu hönnunarheimsins munu beinast á árinu 2012.
Sýningin Icelandic Contemporary Design hefur ferðast víða. Á síðastliðnum tveimur árum hefur hún verið sett upp í sjö borgum víðs vegar um heiminn, aðallega á Norðurlöndum. Ferðalag hennar hefur þjónað hlutverki kynningar á gróskumikilli íslenskri hönnunarsenu og í kring um hana hafa skapast ótal tengingar og tækifæri fyrir íslenska hönnuði. Auk þess hefur hún leikið lykilhlutverk í því að byggja upp HönnunarMars sem alþjóðlegan hönnunarviðburð, en HönnunarMars verður svokallað „satellite” verkefni World Design Capital Helsinki 2012 og gestur á finnsku hönnunarvikunni.
Mikið stendur til í
Design Forum Finland í kringum opnunardaga Icelandic Contemporary Design en Design Forum er gríðarlega áhrifarík stofnun í Finnlandi. Samhliða opnun íslensku sýningarinnar verður 20 ára afmæli
hönnunarverslunar Design Forum fagnað með áhrifafólki úr hönnunarheiminum og menningarlífi borgarinnar. Nokkrir íslenskir hönnuðir munu selja vörur sínar í versluninni af þessu tilefni.
Sýningin Íslensk samtímahönnun - húsgögn, vöruhönnun og arkitektúr
opnaði fyrst á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum í maí 2009. Síðan hefur sýningin verið sett upp í Ketilhúsinu á Akureyri, í Dansk Design Center í Danmörku,í Nordic Lighthouse í Shanghai í Kína, í Peking í 751, stærsta lista- og hönnunarhverfi borgarinnar, í Stokkhólmi á Stockholm Furniture Fair í febrúar 2011 og á hönnunarvikunni í Tallin í september 2011.
Á sýningunni er sýnd íslensk samtímahönnun þar sem er unnið með tengsl
þriggja hönnunargreina sem eiga stóran þátt í því að móta manngert
umhverfi með samspili sín á milli. Á sýningunni er samhengi þeirra
skoðað og hvernig þær eru samofnar mannlegri hegðun allt frá því að
eiga þátt í að skipuleggja tímann, væta kverkarnar eða verja okkur
fyrir náttúruhamförum.
Landslag | Avalanche Barriers
|
Sýnd eru gríðarstór mannvirki og fínleg
nytjahönnun sem eiga þó það sameiginlegt að tilheyra manngerðu umhverfi
og vera mótandi þáttur í því.
Sýningin i Dansk Design Center
Sýningunni er ætlað að vera spegill þess sem
telja má á einn eða annan hátt gæði í íslenskri hönnun undanfarin ár og
gefa ákveðna mynd af íslenskri samtímahönnun. Þar sem góðar hugmyndir
hafa þroskast af faglegum metnaði, alvöru og skynsemi; hugmyndir sem
eru unnar til enda í anda hugsunarháttar sem vert er að setja á oddinn
í dag. Markmiðið er að árétta gildi góðrar hönnunar og öflugs hugvits
fyrir mannlegt samfélag - verðmæti til að virkja til framtíðar.
Ljósmyndir frá sýningunni sem var fyrst sett upp á Listahátíð í Reykjavík á Kjarvalsstöðum 2009.
Ljósmyndari: Ingvar Högni Ragnarsson
Samhliða hönnunarsýningunni er kynning á verkum ungra, efnilegra
hönnuða í samvinnu við Hönnunarsjóð Auroru.
Sýningin er samstarfsverkefni
Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Utanríkisráðuneytis, Mennta-
og menningarmálaráðuneytis, Iðnaðarráðuneytis, Íslandsstofu
og Hönnunarsjóðs Auroru.
Sýningarstjóri: Elísabet V. Ingvarsdóttir
Sýningarhönnun: Kurtogpí í samstarfi við Atelier Atli Hilmarsson
Hönnuðir og verk á sýningunni: