Fréttir

22.11.2011

Hrafnhildur Arnardóttir verðlaunuð


Frá verðlaunaafhendingunni

Myndir: Ek Media AB
Hrafnhildur Arnardóttir listakona fékk afhent hin virtu norrænu textílverðlaun – The Nordic Award in Textiles 2011, fimmtudaginn 10. nóvember 2011. Hrafnhildur hlýtur verðlaunin fyrir frumleg verk sín úr hári, ekta og gervi.

Gunnar Gunnarsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, afhenti Hrafnhildi verðlaunin við hátíðlega athöfn í Åhaga menningar- og tónlistarhúsinu í Borås, að viðstöddum fjölda gesta. Mikið var um dýrðir þetta kvöld, en auk verðlaunaafhendingarinnar og hátíðarkvöldverðar hélt sínfóníuhljómsveit Borås borgar tónleika með þáttöku sænska píanóleikarans Robert Wells.

Fyrr um daginn var opnuð einkasýning á verkum Hrafnhildar í textílsafni Borås borgar, sem standa mun til 26. febrúar 2012. Hrafnhildur hefur verið afkastamikil í list sinni á undanförnum árum og sýnt verk sín víða um heim, m.a. í hinu virta safni Museum of Modern Art í New York.

The Nordic Award in Textiles, sem eru stærstu verðlaun sinnar tegundar í Evrópu, er deilt út árlega af stofnuninni Stiftelsen Fokus og eru þau tilkomin fyrir stórt einkafjárframlag árið 2000. Verðlaunaupphæðin nemur 250.000 sænskum krónum.

www.shoplifter.us
















Yfirlit



eldri fréttir