Fréttir

2.9.2011

Ráðstefna | Skapandi greinar og tækifærin í netheimum


Alþjóðlega ráðstefnan You Are In Control verður haldin í fimmta sinn dagana 10. – 12. október í Hörpu.

Af gefnu tilefni er sérstakur afsláttur veittur fyrir einyrkja/einstaklinga sem vinna við skapandi greinar og fá þeir miða á ráðstefnuna á hálfvirði og borga þar með 10.000 krónur fyrir miðann. Til þess að nýta þetta tilboð er hægt að hafa samband við Bryndísi hjá You Are In Control og þar sem þessir miðar eru í takmörkuðu upplagi og gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

YAIC er framsækin ráðstefna og vinnusmiðjur þar sem leitast er við að varpa ljósi á ný viðskiptamódel í skapandi greinum á tímum stafrænnar byltingar. Tilgangurinn með ráðstefnunni er að koma á alþjóðlegu tengslaneti og skapa þekkingarbanka á Íslandi um stafræn viðskipti og markaðssetningu í skapandi greinum. Markmiðið er að ýta undir aukna samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og einstaklinga í þessum geira atvinnulífsins á alþjóðlegum vettvangi.

youareincontrol.is

Miðasala á ráðstefnuna:

Almenn miðasala á YAIC 2011 hófst með sérstöku tilboði sem stendur til 5. september og því fer hver að verða síðastur að tryggja sér það. Tilboðsverð er 20.000 krónur en 5. september hækkar miðaverð í 30.000 krónur. Í ár mun YAIC fara fram í sömu viku og Iceland Airwaves og af því tilefni hafa skipuleggjendur viðburðanna sett saman sérstakt pakkatilboð þar sem aðgangur fæst á báða viðburði fyrir einungis 25.000 kr. Þessir miðar eru til í takmörkuðu upplagi svo þar gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær. Miða á YAIC og pakkatilboðið á YAIC & IA má nálgast á heimasíðu ráðstefnunnar. Auk þess býður YAIC fyrirtækjum sem vilja senda þrjá aðila á ráðstefnuna að fá þriðja miðann á hálfvirði. Þau fyrirtæki sem óska eftir að senda fleiri en þrjá þátttakendur á ráðstefnuna geta haft samband við Bryndísi hjá You Are In Control til að óska eftir tilboði.


Staðfestir fyrirlesarar og erlendir gestir:

Ralph Simon (US), einn af höfundum nútíma farsímaafþreyingariðnaðarins. Í yfir 15 ár hefur hann verið frumkvöðull í farsímageiranum og átt mikinn þátt í vexti hans og því veigamikla hlutverki sem farsíminn gegnir í dag. Ralph er framkvæmdastjóri Mobilium International, en fyrirtækið veitir ráðgjöf á sviði farsímaþjónustu- og tækni til aðila í tónlistar- og skemmtanaiðnaðinum, alþjóðlegra símafyrirtækja, fjölmiðla, vörumerkja, vöruframleiðenda, auglýsingastofa og heimsþekkts tónlistarfólks, m.a. Lady Gaga, U2 og Madonnu. Ralph er einnig stofnandi og fyrrum stjórnarformaður Mobile Entertainment Forum - Americas (MEF) og er af mörgum betur þekktur sem “faðir hringitónsins” þar sem hann stofnaði fyrsta hringitónafyrirtækið í heiminum fyrir um 13 árum síðan.

Mathias Klang (SE), verkefnastjóri Creative Commons í Svíþjóð og fræðimaður og kennari í Háskólanum í Gautaborg. Mathias rannsakar löglega upplýsingatækni (legal informatics) með áherslu á höfundarrétt, tjáningu á veraldarvefnum, stafræn réttindi og reglugerðir. Þessa dagana fæst hann við rannsóknir á þessum sviðum út frá samfélagsmiðlum. Hann heldur reglulega fyrirlestra og er öflugur greinahöfundur. Mathias bloggar á síðunni digital-rights.net.

Robert Levine (US), fyrrum ritstjóri Billboard og fréttastjóri hjá New York Magazine og Wired. Einnig hefur hann skrifað greinar fyrir Vanity Fair, Rolling Stone og menningar- og viðskiptahluta New York Times. Levine er með B.A.-gráðu í stjórnmálafræði frá Brandeis og M.S.J.-gráðu frá Medill School of Journalism í Northwestern háskólanum. Þessa dagana starfar hann bæði í Berlín og New York við skriftir um skapandi greinar. Fyrsta bók Levins kemur út í október en hún nefnist Free Ride: How the Internet is Destroying the Culture Business and How the Culture Business Can Fight Back og hefur þegar vakið mikla athygli.

Iain Forsyth og Jane Pollard (UK), brautryðjendur í stafrænni markaðssetningu á tónlist. Jane sér um stefnumótun hjá Beggars Group, stærsta samansafn sjálfstæðra útgáfufyrirtækja í Bretlandi og hefur unnið að kynningarmálum fyrir hljómsveitir eins og Radiohead, The White Stripes, Adele og Pixies. Iain vann sem yfirmaður vefmála hjá útgáfufyrirtækinu Mute í yfir 10 ár, meðal annars á meðan fyrirtækið heyrði undir EMI, og hefur unnið með nafntoguðum hljómsveitum á borð við Depeche Mode, Goldfrapp og Moby. Iain og Jane eru virtir myndlistarmenn en verk þeirra skarast gjarnan á við tónlist og hafa falið í sér samstarf við t.d. J. Spaceman (Spiritualized), Plan B og Scanner. Hér má skoða heimasíðu þeirra.

Tilman Scheel (DE), stofnandi og framkvæmdastjóri Reelport GmbH sem er vettvangur á netinu til að senda inn myndir til sýninga á kvikmyndahátíðir eins og Oberhausen og Tampere. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2005 hafa fleiri en 21.000 kvikmyndagerðarmenn og fyrirtæki sett inn 28.000 kvikmyndir og þannig sótt um að þær verði teknar til sýninga á rúmlega 70 hátíðum, meðal annars Marché du Film, Cannes og The Tallinn Black Night Film Market. Tilman stofnaði einnig Europe´s Finest sem hefur keypt Evrópuréttinn á yfir 70 klassískum kvikmyndum, fært þær á stafrænt 2k DCI form og sýnt þær í hundruðum kvikmyndahúsa í 16 löndum í Evrópu.

Staci Slater (US), eigandi Talent House Inc. Staci hefur mikla reynslu af leyfismálum tónlistar fyrir kvikmyndir og sjónvarp og mun stýra vinnustofu um þessi mál þar sem þátttakendur fá innsýn inn hvernig koma má tónlist sinni á framfæri á þessu sviði.

Skipuleggjendur YAIC 2011:

YAIC er samstarfsverkefni skapandi greina á Íslandi. Ráðstefnan er í eigu Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, Kvikmyndamiðstöðvar Íslands, Tónverkamiðstöðvar Íslands, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, Bókmenntasjóðs, Leiklistarsambands Íslands, Hönnunarmiðstöðvar og IGI (Icelandic Gaming Industry) en Íslandsstofa er helsti stuðningsaðili hennar.

Nánari upplýsingar um You Are In Control veitir Bryndís Hjálmarsdóttir kynningarfulltrúi
bryndis@youareincontrol.is
www.youareincontrol.is
facebook.com/youareincontrol
twitter.com/youareincontrol
Sími: 571 5660 / 865 2633


“It fuses creative industries. There are people here from all over: film, music, fashion, art, design, advertising. We all need inspiration and we can inspire each other. Our worlds are coming together.” -Panos Panay, Sonicbids (US) ---°---
















Yfirlit



eldri fréttir