Fréttir

6.5.2011

Umsóknir óskast | Handverk og hönnun í Ráðhúsi Reykjavíkur

Dagana 3. – 7. nóvember 2011 heldur HANDVERK OG HÖNNUN sýningu/kynningu á handverki, hönnun og listiðnaði í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Þetta er í sjötta sem HANDVERK OG HÖNNUN stendur fyrir viðburði af þessu tagi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýningin stendur í 5 daga og er aðgangur ókeypis.

Staður og tími:
Ráðhús Reykjavíkur 3. - 7. nóvember 2011

Opnunartími:
Fimmtudagur 3. nóvember kl. 15 ­­­ – 19
Föstudagur 4. nóvember kl. 10 – 19
Laugardagur 5. nóvember kl. 10 – 18
Sunnudagur 6. nóvember kl. 10 – 18
Mánudagur 7. nóvember kl. 10 – 19

Þátttakendur:
Öllum sem vinna við handverk, listiðnað og hönnun er heimilt að sækja um. Sérstök fagleg valnefnd leggur mat á umsóknirnar og velur þátttakendur. Mikilvægt er að sýningin/kynningin endurspegli fjölbreytt úrval og mun valnefnd hafa það í huga þegar valið er inn. Vegna mikillar samkeppni um pláss á sýningunni er mikilvægt fyrir umsækjendur að vanda vel umsókn og myndir og sýna fram á nýjar vörur hafi viðkomandi tekið þátt áður.

Umsóknir um þátttöku verða að berast í síðasta lagi 25. maí 2011.

Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar eru að finna á vef HANDVERKS OG HÖNNUNAR
















Yfirlit



eldri fréttir