Sýning í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
10. september – 30. október 2011.
Sýningin er samvinnuverkefni Gerðubergs og HANDVERKS OG HÖNNUNAR.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg og HANDVERK OG HÖNNUN standa í haust fyrir sýningunni LeikVerk. Allir hönnuðir, handverks- og listiðnaðarfólk geta sótt um þátttöku.
Leitað er eftir verkum úr fjölbreyttu hráefni á sýninguna. Verkin verða að vera ný og tengjast leik á einhvern hátt. Hafa skal í huga að hugtakið leikur er opið og óbundið aldri, kyni, stað og stund.
Innsend verk verða að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1.
Verkin verða að vera ný, þ.e. gerð á árinu 2011.
2.
Verkin verða að tengjast leik á einhvern hátt.
3.
Verkin mega ekki hafa verið til sölu eða til sýnis fyrir sýninguna.
Fagleg valnefnd mun velja úr innsendum verkum á sýninguna.
Sýningarstjóri er Anna Leoniak arkitekt og vöruhönnuður.
Sýningin verður kynnt í dagskrá Gerðubergs og af HANDVERKI OG HÖNNUN.
Þeir sem hafa hug á þátttöku eru vinsamlegast beðnir um að skrá sig fyrir 30. júní á netfangið: margret.valdimarsdottir@reykjavik.is
Skilafrestur:
Áhugasamir sendi inn fullunnin verk í síðasta lagi mánudaginn 15. ágúst. Niðurstaða valnefndar liggur fyrir mánudaginn 22. ágúst. Þeir sem verða valdir til þátttöku greiða 15.000 kr. í þátttökugjald vegna sýningarinnar.
Nánari upplýsingar:
Menningarmiðstöðin Gerðuberg, Margrét Valdimarsdóttir verkefnastjóri,
sími 575 7700 / 848 0683, netfang:
margret.valdimarsdottir@reykjavik.is
HANDVERK OG HÖNNUN, Sunneva Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri,
sími 551 7595 / 899 7495, netfang:
sunneva@handverkoghonnun.is
gerduberg.is
handverkoghonnun.is