Fréttir

11.4.2011

Málþing | Uppbygging og skipulag ferðamannastaða

Ferðamálastofa boðar til málþings fimmtudaginn 14. apríl næstkomandi á Grandhótel. Til umræðu verður uppbygging og skipulag ferðamannastaða.

Meðal fyrirlesara verður Audun Pettersen frá Innovasjon Norge og einnig hópur innlendra fyrirlesara með þekkingu á málaflokknum.

Málþingið heft kl. 08:30 og lýkur kl. 11:30. Síðasta klukkutímann mun Sævar Kristinsson ráðgjafi hjá Netspori, stjórna umræðuhópum (Heimskaffi).

Dagskrá

  • 08:30 Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri Setning
  • 08:40 Audun Pettersen, sviðsstjóri, Innovation Norway Uppbygging ferðamannastaða í Noregi " White Book"
  • 09:05 Edward Huijbens, forstöðumaður RMF Kortlagning á auðlindum ferðaþjónustunnar
  • 09:15 Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt Menningarstefna í mannvirkjagerð og mikilvægi góðs undirbúnings
  • 09:25 Kaffiveitingar
  • 09:40 Sigrún Birgisdóttir, arkitekt Vatnavinir Vestfjarða - staðarmótun | Bjarki Gunnar Halldórsson, arkitekt Sjávarþorpið Suðureyri - kortlagning og framtíðarsýn
  • 09:50 Oddur Hermannsson, landslagsarkitekt Hönnun trappna og útsýnispalls við Seljalandsfoss og Skógafoss |  Hreinn Óskarsson, skógarvörður Uppbygging útivistarsvæðis með aðgengi fyrir alla - Þjórsárdalsskógur
  • 10:00 Kristín Þorleifsdóttir, landslagsarkitekt Viðmið fyrir skipulag vistvænna ferðamannastaða | Egill Guðmundsson, arkitekt Vistvæn þjónustuhús
  • 10:10 Sigríður Sigþórsdóttir, arkitekt Í samspili við náttúruna
  • 10:15 Anna G. Sverrisdóttir, ráðgjafi Framsýni og fagmennska, langtímahugsun skilar arði
  • 10:25 Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt Vandaðir ferðamannastaðir- hvað þarf að gera?
  • 10:30 Vinnufundur ( heimskaffi ) undir stjórn Sævars Kristinssonar
  • 11:30 Samantekt og áætluð lok

Fundarstjóri Ólöf Ýrr Atladóttir, ferðamálastjóri

Skráning

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á netfangið skraning@ferdamalastofa.is fyrir kl. 14:00 þann 13. apríl nk.

Ferðamálastofa byggir umhverfisstefnu sína á sjálfbærri og ábyrgri ferðamennsku enda er náttúra Íslands sú auðlind sem ferðaþjónustan á Íslandi byggir á til framtíðar. Mikilvægt er að byggja upp innviði sem geta tekið á móti vaxandi fjölda ferðamanna, tryggt öryggi þeirra eftir bestu getu og boðið upp á nauðsynlega þjónustu. Jafnframt þarf að gæta þess að allar áætlanir og framkvæmdir á ferðamannastöðum séu byggðar á vandaðri greiningu og rannsóknum og unnar af varkárni og virðingu fyrir viðkvæmri náttúru Íslands, sögu landsins og menningu.

ferdamalastofa.is

















Yfirlit



eldri fréttir