Fréttir

30.3.2011

Trend Forecast með Eddu Guðmundsdóttur, stílista frá New York.

Edda Guðmundsdóttir, stílisti verður með vor/sumar 2012 Trend Forecast /fyrirlestur um tísku, fegurð og lífsstíl þar sem farið verður yfir liti, stíl og snið ásamt áhrifavöldum og hvernig þetta tengist og stefnir.

Hún hefur til margra ára verið með slíka fyrirlestra fyrir The Limited Brands, Intercoiffure í París, Wella, Redken, L’oreal, Oil of Olay, Tank og fleiri aðila.

Edda hefur búið og starfað í New York í um 20 ár og unnið að margvíslegum verkefnum tengdum tísku og lífsstíl fyrir flest tískublöð beggja vegna Atlantshafsins. Hún hefur stíliserað auglýsingar sem og tísku-, hár-, dans- og listsýningar. Þá hefur hún verið ráðgjafi fyrir skólínur meðal annars hjá Michael Kors, Judith Leiber og Pancaldi, hannað tískufatnað við sérstök tækifæri en einnig verið liðtæk í hönnun einkennisbúninga fyrir hótel, veitingastaði og klúbba víðsvegar um Bandaríkin.

Edda sýnir hárverk með Hrafnhildi Arnardóttur á sýningu þeirrar síðarnefndu í Hönnunarsafni Íslands um þessar mundir.

Trend Forecast Eddu er ætlað sem verkfæri fyrir þátttakendur þar sem alþjóðlegar tískusveiflur geta verið virkjaðar í takt hvers og eins, þeim til framdráttar og markaðsforskots.

Trend Forecast Eddu verður haldið í samvinnu við Reykjavík Runway, mánudaginn 4. apríl kl. 18.30 í Saltfélaginu (áður Hugmyndahúsi háskólanna), Grandagarði 2 og kostar 8.500 kr.. Skráning fer fram á igg@reykjavikrunway.com ATH. Takmarkaður sætafjöldi!
















Yfirlit



eldri fréttir