Fréttir

20.3.2011

Hlutverk hönnuða á tímum breytinga | HönnunarMars 2011

   



Fyrirlestur í Tjarnarbíó 24. mars 2011
| Ilkka Suppanen er arkitekt og húsgagnahönnuður.



Fyrirlestur í Tjarnarbíó 24. mars 2011 | Winy Maas arkitekt er einn af þrem stofnendum arkitektastofunnar MVRDV




Umræður
| Fyrirlestradagskrá í Tjarnarbíói 24. mars 2011 | Ilkka Suppanen, Jerzsey Seymore, Siggi Eggertsson og Winy Maas


Við upphaf HönnunarMars í ár, fimmtudaginn 24. mars efnir Hönnunarmiðstöð til fyrirlestradagskrár og umræðna í Tjarnarbíói sem hönnuðir og áhugafólk um skapandi samfélag ættu ekki láta fram hjá sér fara.

Mikil gróska er á sviði hönnunar og breytt umhverfi kallar á nýjan hugsunarhátt. Hönnun gegnir veigamiklu hlutverki á tímum mikilla breytinga enda býr aðferðafræði hönnunar yfir einstökum möguleikum til sköpunar og endursköpunar.

Tími breytinga

Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson opnar Fyrirlestradagskrá Hönnunarmiðstöðvar í HönnunarMars.

Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við Listaháskóla Íslands stjórnar dagskránni.

Hönnuðir sem þekktir eru í hönnunarheiminum fyrir djarfa sýn og nýstárleg efnistök munu stíga á svið og miðla reynslu sinni, hugmyndafræði og framtýðarsýn.

 

Fram koma:

Winy Maas, arkitekt  MVRDV

Jerszy Seymour, hönnuður

Ilkka Suppanen, hönnuður

Siggi Eggertsson, hönnuður

 

Jerszy Seymour er vöru og húsgagnahönnuður, þekktur fyrir nýstárlega nálgun við notkun á efniðvið. Afslappður húmor einkennir verkin hans og þau eru leikræn og litrík og tilvísanir virðast oft vera til popplistarinnar og teiknimyndaheimsins. Jerszy veltir fyrir sér hönnun í nútímanum, um hvað hún snýst og hvernig hún hefur áhrif.

Winy Maas arkitekt er einn af þrem stofnendum arkitektastofunnar MVRDV, en stofan hefur verið leiðandi vitsmunalegt og ögrandi afl innan arkítektúrs síðustu 20 árin. Winy Maas stýrir einnig The Why Factory, rannsóknarstofu borga framtíðarinnar, sem hann stofnaði árið 2008 í samvinnu við Delft School of Design.

Ilkka Suppanen er arkitekt og húsgagnahönnuður. Ilkka sækir í skandinavíska arfleifð í hönnun sinni en nálgast hana á afslappaðan og nýstárlegan hátt. Hönnun hans er nútímaleg og hagnýt en á sama tíma höfðar hann til fagurfræðilegra sjónarmiða. 1995 stofnaði Ilkka Studio Suppanen sem hefur unnið ýmis hönnunarverkefni fyrir mörg alþjóðleg fyrirtæki eins og Arted, Axis, Cappellini, Ferlea, Leucos, Lucente, Nokia, Zanotta, Marimekko og Saap svo einhver séu nefnd. Ilkka hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir hönnun sína víðs vegar um heiminn.

Siggi Eggertson er grafískur hönnuður fæddur á Akureyri árið 1984. Siggi hefur verið sérstaklega afkastamikill í starfi og hefur verið lýst í alþjóðlegum fagtímaritum sem upprennandi sjörnu myndskreytinga með sinn einstaka stíl. Hann hefur starfað fyrir fjöldamörg innlend sem alþjóðleg fyrirtæki s.s.12 Tóna, Listahátíðina Sequences, HönnunarMars, Coca Cola, H&M Divided, Nike, Wallpaper, Stussy, Wired Magazine o.fl. o.fl. auk þess sem að verk eftir Sigga hafa birst í fjölmörgum erlendum blöðum og tímaritum.

Í boði verða fallegar veitingar að hætti Majones en dagskráin hefst kl. 10.00 og lýkur kl. 15.00.

Aðgangseyrir 2500 – miðasala á midi.is og í Tjarnarbíói.


















Yfirlit



eldri fréttir