Fréttir

25.3.2011

Treflaverksmiðja

Laugavegur 6 | 25.-27.03 12:00-18:00



Eitt af aðalsmerkjum Víkur Prjónsdóttur er rekjanleiki og gagnsæi framleiðslu Víkurprjóns í Vík í Mýrdal. Á HönnunarMars mun Vík Prjónsdóttir opna treflaverksmiðju þar sem gestir geta fylgst með framleiðslunni og keypt nýlagaða trefla. Bæði hönnuðirnir og starfsmenn framleiðslunnar í Vík munu sjá um að framleiða treflana. Eins og í öllum verksmiðjum stöðvast framleiðslan ekki nema í kaffihléum og mun því vera stöðugur púls, hiti og sviti í þessari litlu verksmiðju.

Móttaka fyrir boðsgesti verður haldin föstudaginn 25. mars á milli 17 og 19.

















Yfirlit



eldri fréttir