Vöruhönnuðurnir Aamu Song og Johan Olin halda fyrirlestur í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi, fimmtudaginn 20. janúar kl. 20.00. Hönnuðirnir
eru gestakennarar í vöruhönnun við Listaháskóla Íslands.
Aamu og
Johan reka fyrirtækið Company í Helsinki. Þau hafa ferðast með búðina
sína The Secret Shop eða Salakauppa víða um heim síðastliðin 5 ár.
Hönnuðurnir starfa á hönnunarvettvanginum sem hönnuðir, framleiðendur, seljendur og vers
...lunareigendur. Hugmyndafræði þeirra og vörur endurspegla og fagna hefðbundnu finnsku handverki og hráefni.
Föstudaginn 21. janúar kl. 17.00 opnar The Secret Shop í Spark Design Space að Klapparstíg 33, sýningin stendur til 15 mars.
Opnunartími: 10.00 - 18.00 virka daga og 12.00 - 16.00 á laugardögum.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar Íslands, Listaháskóla Íslands og Listasafns Reykjavíkur.
com-pa-ny.com
sparkdesignspace.com
listasafnreykjavikur.is
lhi.is