Fréttir

17.12.2010

Gagarín óskar eftir grafískum hönnuði

Gagarín óskar eftir að ráða grafískan hönnuð til starfa.

Starfið felur í sér fjölbreytt viðfangsefni auk þátttöku í skilgreiningu verkefna og útfærslu lausna. Hlutastarf kemur til greina.

Við leggjum áherslu á fagleg vinnubrögð, styrka verkefnastjórnun ásamt frumleika og skapandi hugsun í öllu okkar starfi.

Umsóknir með ferilskrá og sýnishornum sendist á geir@gagarin.is.

Nánari upplýsingar veitir Geir Borg framkvæmdastjóri í síma 510 9300. Allar umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.

gagarin.is
















Yfirlit



eldri fréttir