Fréttir

15.11.2010

Fyrirlestur | Opni listaháskólinn

Arkitektarnir Gianni Botsford og Denis Balent frá London fjalla um verk sín í fyrirlestri í Opna Listaháskólanum miðvikudaginn 17. nóvember kl 12:05 í Skipholti 1,stofu 113.

Gianni og Denis kenna arkitektúr við London Metropolitan University í London. Þeir eru hér á landi með nemendum sínum til að rannsaka sögulegar byggingarhefðir á Íslandi en nemendur þróa hönnunarverkefni fyrir íslenskar aðstæðar í kjölfarið.

Þeir munu flytja sinn hvorn fyrirlesturinn:

“Local Adaption” Gianni Botsford mun fjalla um þrjú einbýlishús og hönnunarferlið sem tekur mið af veðurfari, menningu og staðbundnu samhengi. Gianni lærði við Architectural Association og rekur eigin stofu í London. Hann hlaut Lubetkin arkitektúr verðlaunin árið 2008 fyrir Casa Kiké í Costa Rica og var tilnefndur til Architectural Review verðlauna fyrir Íbúðarhúsnæði árið 2010. www.giannibotsford.com.

"Network office" Denis Balent mun fjalla um verk stofunnar og áhrif staðbundins samhengis á hönnunarferlið. Denis Balent lærði við Architectural Association og rekur stofu í London, Urban Future Organisation. Stofan var tilnefnd til Bresku “ Young Architecture Award”. Hann hefur kennt við AA, University of Cambridge og nú við London Metropolitan University. www.urbanfuture.org.

viðburðurinn á facebook
















Yfirlit



eldri fréttir