Fimm sýningar íslenskra listamanna og hönnuða verða opnaðar í Peking á
Degi íslenskrar tungu, þriðjudaginn 16. nóvember. Fjórar sýninganna
verða haldnar í 751, stærsta lista- og hönnunarhverfi borgarinnar, og sú
fimmta í sendiráði Íslands.
Á þriðja tug fyrirtækja og stofnana frá Kína og Íslandi koma að
sýningunni ýmist sem styrktaraðilar eða fagaðilar sem gefa vinnu sína. Sýningarnar eru haldnar í samstarfi við skipulagsaðila Hönnunarvikunnar í Peking og skipuleggjendur NOTCH10, kínversk-norrænu menningarhátíðarinnar í Peking.
- Icelandic Contemporary Design - furniture, product design, architecture er samsýning hugmynda og verka um 30
hönnuða og arkitekta frá Íslandi. Sýningin er á vegum
Hönnunarmiðstöðvar. Sýningarstjóri er Elísabet V. Ingvarsdóttir.
- STEiNUNN er yfirlitssýning verka Steinunnar Sigurðardóttur hins margverðlaunaða fatahönnuðar, sem stillir upp sköpunarverkum sínum og tvinnar saman efni og náttúru.
- Ljóðrými – veðurskrift: Guðrún
Kristjánsdóttir, myndlistarmaður, setur upp sýningu sem í orðsins
fyllstu merkingu varpar ljósi á umhverfið og umvefur gesti birtu,
skuggum, ljóðum og tónum.
- Lón vættanna er sýning á jöklamyndum Ragnars Axelssonar,
betur þekktur sem RAX en þar sést hvernig frosin lög jökulsins hafa
hlaðið upp svipmyndum liðinna alda.
- Kynning á samtímalist í sendiráðinu: Erla Haraldsdóttir, Erla
Þórarinsdóttir, Guðjón Ketilsson, Guðrún Einarsdóttir, Guðrún
Kristjánsdóttir, Hulda Hákon, Inga Svala Þórsdóttir, Jón Óskar, Erró og
Sigurður Guðmundsson hafa lánað sendiráðinu verk sín.
Sýningarnar eru liður í að fylgja eftir þátttöku
Íslands í Heimssýningunni í Sjanghæ og nýta tækifæri til þess að kynna
íslenskar listir og hönnun í Kína. Icelandic Contemporary Design
og kynning á samtímalist í sendiráðinu eru liður í átaksverkefnum
utanríkisþjónustunnar á sviði lista og skapandi greina.
Markmið sendiráðsins og samstarfsaðilanna er að koma á samböndum og
tengslum sem nýst geta íslenskum hönnuðum, arkitektum og
myndlistarmönnum, og að styrkja ímynd Íslands sem nútímalegs samfélags
með víðtækri umfjöllun kínverskra fjölmiðla um hönnun, arkitektúr,
myndlist og ljósmyndun.
Helstu samstarfs- og stuðningsaðilar utanríkisráðuneytisins og
sendiráðsins í Peking eru mennta- og menningarmálaráðuneytið,
Íslandsstofa, Hönnunarmiðstöð Íslands og Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar auk kínverska fyrirtækja.
Þetta segir á vef utanríkisráðuneytis