Umsóknarfrestur rennur út föstudaginn 1. október 2010, kl. 17:00.
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun
listamanna sem úthlutað verður árið 2011, í samræmi við ákvæði laga nr.
57/2009.
Starfslaun eru veitt úr sex sjóðum, þeir eru:
1.
launasjóður hönnuða
2. launasjóður
myndlistarmanna
3. launasjóður rithöfunda
4. launasjóður
sviðslistafólks
5. launasjóður
tónlistarflytjenda
6. launasjóður tónskálda
Auk starfslauna er
sjóðunum heimilt að veita ferðastyrki.
Sækja skal um listamannalaun á vef
Stjórnarráðsins, vefslóðin er:
http://umsokn.stjr.is umsóknarfrestur er til kl. 17.00, föstudaginn 1. október 2010.
Fylgigögn með umsókn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast skrifstofu stjórnar
listamannalauna, Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík, fyrir kl. 17.00, föstudaginn 1. október 2010, sé um póstsendingu
að ræða gildir dagsetning póststimpils.
Hafi umsækjandi hlotið starfslaun áður, verður
umsókn því aðeins tekin til umfjöllunar að framvinduskýrslu vegna fyrri
starfslauna hafi verið skilað til stjórnar listamannalauna, sbr. ákvæði 4. gr.
laga um listamannalaun nr. 57/2009.
Einungis er unnt að sækja um starfslaun fyrir
sama verkefni í einn sjóð.
Samkvæmt 3. gr. laga nr. 57/2009 er stjórn
listamannalauna heimilt að færa umsóknir á milli sjóða. Slíkt verður gert í
samráði við umsækjanda.
Lög um listamannalaun og reglugerð er að finna á
heimasíðu stjórnar listamannalauna:
www.listamannalaun.is
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofunni í síma 562 6388.