Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um hönnun húsgagna í
almenningsrými Tónlistar og ráðstefnuhússins Hörpu.
Fyrirtækið Portus, sem á og rekur Hörpu efnir til
samkeppninnar í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands.
Um er að ræða bekki í anddyri Hörpu, lausa bari, ráðstefnuborð og
ræðupúlt. Áhersla er lögð á að
hönnunin falli vel að sérstakri hönnun Hörpu, að samræmi sé í efnisvali og að
hægt verði að framleiða húsgögnin hér á landi. Samkeppnin er opin hönnuðum og arkitektum.
Í september verður haldinn kynningarfundur þar sem samkeppnis- og verkefnislýsing
verður lögð fram ásamt tæknilegum upplýsinum frá arkitektum hússins. Verðlaunafé er ein milljón króna og
skilafrestur tillagna verður til 15. janúar 2011. Dómnefnd skilar áliti um miðjan febrúar 2011 og munu allar
innsendar tillögur verða til sýnis að því loknu.
Í dómnefnd keppninnar sitja eftirtaldir: Osbjørn Jacobsen, arkitekt frá Henning
Larsen Architects, Soffía Valtýsdóttir, arkitekt frá Batteríinu bæði tilnefnd
af Portus, frá Félagi vöruhönnuða er Þorsteinn Geirharðsson, arkitekt og
iðnhönnuður og Hjalti Geir Kristjánsson, húsgagnaarkitekt fyrir Félag
innanhússarkitekta, báðir tilnefndir af Hönnunarmiðstöð. Formaður nefndarinnar
er Þórunn Sigurðardóttir, formaður Ago, rekstrarfélags Hörpu, sem skipuð er af
Portusi. Ráðgjafi dómnefndar er
Lúðvík Bjarnason. Trúnaðarmaður nefndarinnar er Haukur Már Hauksson, hönnuður.
Nánari upplýsingar veitir
Þórunn Sigurðardóttir,
stjórnarformaður Ago
sími: 897 2089
www.harpa.is