Íslenskur arkitekt,
Dagur Eggertsson í
samstarfi við
Sami Rintala voru
boðnir að vera þátttakendur í að reysa innsetningu, ARK, á sýningunni
1:1 – Architects Build Small Spaces í
Victoria & Albert Museum í
London. Þeir eru eitt af sjö arkitektateymum sem koma víðsvegar að úr
heiminum til að taka þátt í sýningunni.
Rintala Eggertsson Arkitektar, með bækistöðvar í Noregi, reistu
bókaturninn ARK í stigagangi safnsins, í námunda við bókabúð safnsins á
fyrstu hæð og bókasafnið (National Art Library) á hæðinni fyrir ofan.
Þeim er mikill heiður sýndur að vera boðnir að sýna í þessu safni, en
Victoria & Albert Museum er fyrsta og elsta hönnunarsafn í heiminum, opnað eftir
heimssýninguna í London 1850, og jafnframt langstærsta safn sinnar
tegundar í heiminum.
Sýningin hefur fengið mikla athygli í fjölmiðlum og er hægt að nálgast
greinar með frekari upplýsingum um sýninguna og aðdraganda hennar frá
The Guardian,
The Times,
BBC World (á 16:22 mínútu),
TimeOut,
dezeen.com og
ArchDaily.
Sýningin verður opin til ágústloka.
Ljósmyndir ©
Pasi Aalto