Hver stendur fyrir keppninni:
Forsætisráðuneytið (nefnd til undirbúnings 200 ára
fæðingarafmælis Jóns Sigurðssonar) í samstarfi við HANDVERK OG HÖNNUN,
Hönnunarmiðstöð Íslands, Listaháskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands.
Verkefnið:
Að hanna minjagrip sem sækir innblástur í sögu og
menningararf og tengist lífi og starfi Jóns Sigurðssonar. Þann 17. júní
2010 var opnaður vefur með margvíslegum upplýsingum og efni um Jón
Sigurðsson sem þátttakendur geta notfært sér.
Verðlaunafé:
Verðlaunfé er ein milljón króna sem skiptist þannig:
1. verðlaun kr. 600.000.- og kr. 400.000.- sem skiptast skv. ákvörðun
dómnefndar.
Fyrir hverja:
Keppnin er öllum opin og vonast er til að hönnuðir, handverksfólk, listafólk og nemendur sjái sér fært að taka þátt.
Umsóknarferli:
Tillögum skal skila í lokuðu umslagi merktu
dulnefni í Stjórnarráðshúsið við Lækjartorg fyrir kl.12:00 mánudaginn
20. september 2010. Í umslaginu skal vera annað lokað umslag merkt
dulnefni en inni í því þarf rétt nafn höfundar heimilisfang og sími að
koma fram. Tillögum skal skila útprentuðum á A4 blaði í lit (hámark 3
síður) eða sem ljósmyndum af fullunnum hlut. Tillögur skulu einnig
fylgja með á geisladiski með pdf-skjölum og/eða ljósmyndum.
Úrslit
samkeppninnar verða tilkynnt um mánaðamótin október – nóvember. Sýning
á völdum innsendum tillögum fer fram á sama tíma.
Nánari lýsing:
Nánari upplýsingar eru á vefnum
www.jonsigurdsson.is
Auk þess veitir trúnaðarmaður keppninnar, Sigrún Ólafsdóttir, frekari upplýsingar.
Netfang:
sigrun.olafsdottir@for.stjr.is
Dómnefnd skipa:
Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður,
Halla Helgadóttir frá Hönnunarmiðstöð Íslands,
Sunneva Hafsteinsdóttir frá HANDVERKI OG HÖNNUN,
Jóhannes Þórðarson frá Listaháskóla Íslands,
Björn G. Björnsson frá afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar, sem er formaður.
Framleiðsla og sala:
Framleiðsla er alfarið á forræði höfunda. Valdir
verða 3-5 gripir sem henta til framleiðslu en þá má merkja sem
verðlaunagripi úr samkeppninni.