Myndstef auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki og ferða- og menntunarstyrki á vegum samtakanna.
Rétt til þess að sækja um styrki Myndstefs hafa allir myndhöfundar.
Sérstök umsóknareyðublöð eru á vef samtakanna
og þar eru einnig nánar skilgreind þau atriði sem þurfa að koma fram í
umsókninni ásamt reglum um úthlutun styrkjanna.
Umsóknarfrestur rennur
út 20. ágúst 2010. Umsóknir sem berast eftir þann tíma fá ekki
afgreiðslu. Tekið skal fram að póststimpill gildir á innsendum umsóknum.
Umsóknir skulu berast til skrifstofu Myndstefs, Hafnarstræti 16, p.o.box 1187, 121 Reykjavík fyrir ofangreindan tíma.
Allar nánari
upplýsingar gefa Þórhildur Laufey Sigurðardóttir og Kristín
Magnúsdóttir á opnunartíma skrifstofunnar. 10:00 – 14:00 alla virka
daga. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið
myndstef@myndstef.is
Vakin er
athygli á því að Myndstef áskilur sér rétt til að birta á heimasíðu
sinni texta og myndir um viðkomandi verkefni í samráði við höfund þess.
myndstef.is