KRADS arkitektar er með þeim
yngri, en jafnframt ein af áhugaverðustu arkitektastofum hérlendis. Stofan er stofnuð
af þeim Kristjáni Eggertssyni og Kristjáni Erni Kjartanssyni auk Mads Bay
Möller, og síðan hefur Kristoffer J. Beilman bæst við hópinn. KRADS er með útibú
beggja vegna hafsins - á Íslandi og í Danmörku - og fást við vítt svið
verkefna, allt frá borgarskipulagi og hefðbundnum byggingarverkum til
margvíslegra tilraunaverkefna og þróunarstarfs og mikil áhersla lögð á skapandi
og ferskar lausnir sem vísa fram í tímann.
Af nýjustu verkefnum þeirra má meðal
annars nefna verslunarmiðstöðina Kauptún í Garðabæ, 2. verðlaun í samkeppni um
framhaldsskóla í Mosfellsbæ og listsmiðju arkitektanema í Listaháskóla Íslands
þar sem LEGO kubbar voru byggingarefni.
Á fimmtudagskvöldið 27. maí
munu þeir Kristján og Kristján flytja fyrirlestur og segja frá verkefnum og
nálgun stofunnar í máli og myndum, þeirra á meðal lóðréttri einbýlishúsabyggð,
fljúgandi drive-through veitingastað, 50 hæða turn í formi indíánatjalds og
gildi þess að leika sér með LEGO!
Hafnarhúsi Listasafns
Reykjavíkur, fimmtudag 27. maí kl. 20:00. Ókeypis er inn og allir velkomnir.
krads.info