Kunngerð verða úrslit í hönnunarsamkeppni í anda Ásmundar Sveinssonar myndhöggvara, laugardaginn 1. maí kl. 17 í Ásmundarsafni. Það er
dóttir listamannsins, Ásdís Ásmundsdóttir, sem mun afhenda fyrstu
verðlaun en fimmtán bestu hugmyndirnar í
samkeppninni verða einnig til sýnis í safninu.
Á sama tíma verður opnuð
sýningin Ég kýs blómlegar konur ... Konur í verkum Ásmundar
Sveinssonar, þar sem sjónum er beint að konum og kvenímyndinni í verkum
Ásmundar. Þá hefur hluti af vinnustofu Ásmundar verið endurgerður, sem
gerir gestum kleift að skyggnast inn í líf og starf myndhöggvarans.
HÖNNUN Í ANDA ÁSMUNDAR
Alls
bárust 68 tillögur í hönnunarsamkeppninni um Ásmund Sveinsson en að
henni standa verslunin Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöð
Íslands. Óskað var eftir tillögum að nytjahlut sem endurspegla skyldi
hugarheim og verk myndhöggvarans og var keppnin öllum opin.
Verðlaunahafi
hlýtur verðlaun að verðmæti 500.000 kr. sem Kraum, Listasafn Reykjavíkur, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins leggja til, auk
þess sem hluturinn verður seldur í verslunum Kraums í Aðalstræti og á
Kjarvalsstöðum og í safnverslunum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi
og Ásmundarsafni. Einnig má gera ráð fyrir því að fleiri munir sem
bárust í samkeppnina verði valdir til sölu á næstu mánuðum.
Að
mati dómnefndar fela þær fimmtán hugmyndir sem sýndar verða í
Ásmundarsafni allar í sér skemmtilegar og raunhæfar hugmyndir að vöru
með vísun í form- og hugarheim Ásmundar Sveinssonar. Þær endurspegla
ólík tímabil í listsköpun Ásmundar og fela jafnframt í sér afar vel
útfærðar lausnir á hugmyndum sem eru í takt við ákveðna meginstrauma.
Dómnefnd
skipuðu: Halla Bogadóttir f.h. Kraum, formaður, Soffía Karlsdóttir f.h.
Listasafns Reykjavíkur, Halla Helgadóttir f.h. Hönnunarmiðstöðvar
Íslands, Pétur H. Ármannsson arkitekt, Óðinn Bolli Björgvinsson,
vöruhönnuður og Ingirafn Steinarsson f.h. SÍM.
„ÉG KÝS BLÓMLEGAR KONUR...“
Stór
hluti af verkum Ásmundar fjalla um konur; allt frá ástríkum mæðrum til
stritandi vinnukvenna eða frá viðkvæmum stúlkum til hamslausra
tröllkvenna. Titill sýningarinnar er tilvitnun í Ásmund sjálfan í
viðtali sem tekið var við hann í Þjóðviljanum sumarið 1961 undir
yfirskriftinni „Vinnan er lífið — og fegurðin“.
Verkin á
sýningunni lýsa sameiginlegum tilfinningum sem birtast sem táknsögur
fyrirbæra eða skáldskapar. Þau spanna allan feril Ásmundar og sýna allt
frá fyrstu raunsæisverkum hans til íburðarmikilla framsetninga hans á
kvenkynsímyndunum. Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.
Sýningin stendur
til 17. apríl árið 2011.
Í píramída Ásmundarsafns hefur verið
komið upp endurgerð af vinnustofu Ásmundar þar sem ljósi er varpað á
vinnuaðstöðu hans í Sigtúninu. Einnig hefur verið sett upp lesstofa þar
sem hægt er að fræðast um líf og list Ásmundar í máli og myndum.
Þetta segir á vef Listasafns Reykjavíkur