Fréttir

11.3.2010

Dagskrárkynning | HönnunarMars 2010


Hönnunarmiðstöð Íslands kynnir með ánægju hina árlegu hönnunarhátíð, HönnunarMars!

Dagana 18. – 21. mars 2010 stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars. Markmiðið er að halda áfram því góða starfi sem farið var af stað með, þar sem grasrótin í hönnunarsamfélagi landsins stendur fyrir stærsta hluta dagskrárinnar.

Kynning á glæsilegri dagskrá HönnunarMars 2010 fer fram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur nk. fimmtudag 11. mars kl. 20.


DesignMarch 2010 HönnunarMars er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum og hönnun þeirra hjá almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Íslenskir hönnuðir hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést í þeirri miklu grósku sem er í íslenskri hönnun í dag.

Nú þegar hefur fjöldi erlendra blaðamanna boðað komu sína á HönnunarMars 2010. Erlendir fyrirlesarar, sem ættu að verða hönnunarsamfélaginu og öðrum innblástur, munu taka til máls í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar auk þess sem Norrænir kaupendur og framleiðendur hönnunar taka þátt í kaupstefnu sem Hönnunarmiðstöð stendur fyrir í samstarfi við Norræna húsið.

Viðburðir í HönnunarMars 2010

• Sýningar á íslenskri hönnun og arkitektúr
• Opin hús
• Verðlaunaafhendingar
• Viðburðir, uppákomur og veislur

Kynnið ykkur glæsilega dagskrána



















Yfirlit



eldri fréttir