Fréttir

18.1.2010

Styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar

Nú eru styrkir til atvinnumála kvenna lausir til umsóknar en það er Félags- og tryggingamálaráðherra sem veitir þá ár hvert. Að þessu sinni eru 30 milljónir til úthlutunar. Vinnumálastofnun hefur umsjón með styrkveitingunum og er umsóknarfrestur til og með 7. febrúar 2010.

Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar, til vöruþróunar, markaðsmála, vegna efniskostnaðar og hönnunar svo eitthvað sé nefnt.

Nýmæli í styrkveitingununum að þessu sinni er að hluta af fjármagninu, sem til ráðstöfunar er, verður eyrnamerkt atvinnulausum konum sem hafa góðar viðskiptahugmyndir. Skilyrði er að þær hafi sótt um styrk hjá Vinnumálastofnun til að þróa eigin viðskiptahugmynd en það úrræði er eitt af vinnumarkaðsúrræðum stofnunarinnar.  

Sótt er um styrki á vefsvæðinu http://www.atvinnumalkvenna.is/ á rafrænum umsóknareyðublöðum sem þar er að finna.

Allar nánari upplýsingar og leiðbeiningar má ennfremur finna á heimasíðunni.

Nánari upplýsingar veitir starfsmaður verkefnisins, Ásdís Guðmundsdóttir, í síma 582-4914 eða í netfanginu asdis.gudmundsdottir@vmst.is


















Yfirlit



eldri fréttir